Bjóðum Landhelgisgæsluna velkomna heim í Njarðvíkurhöfn
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem haldinn var þriðjudaginn 19. maí var algjör samstaða um áskorun til dómsmálaráðherra Íslands um að standa með áður undirritaðri viljayfirlýsingu um að skipastóll Landshelgisgæslu Íslands verði fluttur í Njarðvíkurhöfn.
Tímasetningin er engin sérstök tilviljun því senn líður að því að nýr grjótvarnargarður í Njarðvíkurhöfn verði tilbúinn og þá er næsta skref í ferlinu að bjóða út uppbyggingu viðlegukants og aðstöðu fyrir Landhelgisgæsluna við þennan grjótgarð.
Flutningnum fylgir mikil uppbygging og þjónusta fyrir fyrirtæki í Reykjanesbæ og því mikill hagur fyrir samfélagið að þetta verði að veruleika.
Áskorunin
Um árabil hefur verið til umræðu að flytja skipastól Landhelgisgæslu Íslands til Njarðvíkurhafnar og hefur ríkt mikil samstaða á meðal heimamanna í Reykjanesbæ um verkefnið.
Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð 26. maí 2023 af Jóni Gunnarssyni, þáverandi dómsmálaráðherra, og lutu áformin að gerð langtímaleigusamnings um viðlegukant, auk nauðsynlegrar aðstöðu fyrir þau tæki og búnað sem tilheyra rekstrinum, auk veituþjónustu.
Enn er mikill áhugi hjá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ að gera Njarðvíkurhöfn að heimahöfn Landhelgisgæsluskipa, enda aðstaðan einstaklega hentug og í aðeins 6-7 mínútna akstursfjarlægð frá aðstöðu Landhelgisgæslu Íslands á Keflavíkurflugvelli og gott samgöngunet við höfuðborgarsvæðið.
Staðsetning skipa Landhelgisgæslunnar í Reykjanesbæ fremur en Reykjavík hefur ekki áhrif á viðbragðstíma til norðurs, svo sem til Vestfjarða, en myndi stytta viðbragðstíma um a.m.k. tvær klukkustundir suður fyrir landið.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar því á dómsmálaráðherra að taka af skarið og framfylgja áður undirritaðri viljayfirlýsingu og skapa Landhelgisgæslu Íslands aðstöðu til framtíðar í Reykjanesbæ.
Hjörtur M Guðbjartsson
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ








