Eldri borgarar eiga skilið öryggi og virðingu
Í gær fórum við í Miðhús og ræddum við eldri borgara um þá umræðu og óvissu sem skapaðist í fyrra þegar starfsmaður var látinn fara og sögusagnir fóru af stað um að loka ætti félagsstarfinu. Það var greinilegt að þessi umræða hafði áhrif á marga og skildi eftir óöryggi og óánægju sem enn er til staðar.
Það sem sat mest í mér eftir heimsóknina var að heyra hversu mikil áhrif þessi umræða hafði á eldri borgara. Margir upplifðu óvissu og voru uggandi yfir því hvað yrði um félagsstarfið sem skiptir þá svo miklu máli. Það sýnir bara hversu mikilvægt staðir eins og Miðhús og Auðarstofa eru fyrir samfélagið okkar.
Þetta eru ekki bara hús eða starfsemi á blaði. Fyrir marga eru þetta staðir þar sem fólk hittir aðra, fær sér kaffi, spjallar, tekur þátt í félagslífi og finnur fyrir samveru og öryggi. Fyrir suma er félagsstarfið stór og mikilvægur hluti af daglegu lífi.
En eldri borgarar eiga skilið meira en bara að halda í það sem þeir hafa nú þegar. Þeir eiga rétt á öflugu og lifandi félagsstarfi, góðri aðstöðu, fjölbreyttri dagskrá og samfélagi sem hlustar á þarfir þeirra. Þeir eiga að hafa tækifæri til hreyfingar, námskeiða, menningarviðburða, sameiginlegra ferða og félagslegrar virkni sem eykur lífsgæði og vellíðan.
Við eigum líka að hugsa betur um andlega og félagslega heilsu eldri borgara. Einmanaleiki er raunverulegt vandamál hjá mörgum og þess vegna skiptir félagsstarfið svo miklu máli. Það getur skipt sköpum að eiga stað til að mæta á, hitta fólk og finna að maður tilheyri samfélaginu áfram.
Þess vegna er svo mikilvægt að farið sé af ábyrgð í alla umræðu sem snýr að eldri borgurum og þjónustu þeirra. Eldri borgarar eiga ekki að þurfa að lifa við óvissu eða áhyggjur um hvort félagsstarfið þeirra verði tekið frá þeim, hvort þjónustan skerðist eða hvort það verði sparað á þeirra kostnað. Það sama á við um allt annað starf og þjónustu fyrir eldri borgara í Suðurnesjabæ sem skiptir þá máli í daglegu lífi.
Ég skil vel að margir hafi orðið reiðir og ósáttir þegar þessar sögusagnir fóru af stað. Þegar fólk upplifir að verið sé að rugga mikilvægu öryggi í lífi þess skapast vantraust og ótti. Það er eitthvað sem við eigum aldrei að gera lítið úr.
Við hjá Miðflokkurinn viljum vera skýr:
Það verður ekki lokað félagsstarfi í Miðhúsum né í Auðarstofu á okkar vakt.
Þvert á móti viljum við efla starfið og bæta aðstöðuna. Við viljum hlusta betur á eldri borgara sjálfa og vinna með þeim að því að þróa félagsstarf sem hentar þeirra þörfum og óskum. Við viljum að eldri borgarar í Suðurnesjabæ finni að samfélagið standi með þeim og virði mikilvægi þess að eiga stað til samveru, félagslífs og virkni.
Samfélag sem kemur vel fram við eldri borgara sína er sterkt samfélag. Þetta er fólkið sem byggði upp bæinn okkar og lagði grunninn að því samfélagi sem við búum í í dag. Það minnsta sem við getum gert er að tryggja þeim virðingu, öryggi og góð lífsgæði.
Eldri borgarar eiga að geta notið lífsins í friði, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af framtíð félagsstarfsins síns eða annarri þjónustu sem skiptir þá máli.
Sigrún Harpa Sigurjónsd. Heide
2. sæti Miðflokksins í Suðurnesjabæ






