Engin hælisleitendamiðstöð án samþykkis íbúa
Samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi á Aþingi á að opna hér hælisleitendamiðstöð í júní. Þar á að vera lokað brottfararúrræði, skimunarstöð, opnar móttökubúðir og aðstaða fyrir fólk sem Rauði krossinn hefur þjónusta í neyðarskýlum. Öllu virðist eiga að koma á einn stað. Þetta eru bæði ófagleg og óásættanleg áform.
Reykjanesbær er sterkt og samheldið samfélag sem hefur ítrekað sýnt að hér býr fólk sem tekur ábyrgð, sýnir mannúð og stendur saman þegar á reynir. Fjölbreytileiki íbúa er helsti styrkur okkar og á að vera grunnur uppbyggingar en ekki álagspunktur sem fáir bera ábyrgð á fyrir hönd heildarinnar.
Maður skyldi ætla að þessi staðreynd væri þá metin okkur í hag en svo hefur ekki verið raunin. Þvert á móti hefur álagið af málaflokknum hlutfallslega verið langmest hér. Á einum tímapunkti dvöldu um 1.200 einstaklingar á vegum ríkisins í einu hverfi í sveitarfélaginu án samráðs við bæjaryfirvöld, í húsnæði sem ekki þurfti að grenndarkynna á meðan sambærileg mál vöktu miklar deilur annars staðar. Þetta sýnir svart á hvítu að Reykjanesbær hefur borið aukinn þunga í málaflokknum, lagt umfram það sem eðlilegt getur talist.
Sem fyrr segir stendur nú til að opna hér brottfararmiðstöð og eru flestir sammála nauðsyn opnunar slíks búsetuúrræðis í ákveðnum og mjög vel skilgreindum tilfellum. Það sem flestir vita þó ekki eru áformin um að loka móttökustöð í Reykjavík og færa hana hingað líka. Það skal skýrt tekið fram að móttökustöð er ekki lokað úrræði samkvæmt lögum.
Frumvarpinu sem um ræðir er nú haldið inn í nefnd á Alþingi. Hvers vegna ætli það sé raunin? Í mínum huga er það vegna hræðslu við að taka það til afgreiðslu fyrir sveitarstjórnarkosninga. Ég hef griðarlegar áhyggjur af þessu máli. Enn undalegra er að flestir á Alþingi virðast telja þetta bara hið besta mál.
Sem oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ er alveg skýrt að þetta kemur ekki til greina í mínum huga. Ég er tilbúin að vinna með ríkinu að uppbyggingu lokaðrar brottfarastöðvar en aðeins gegn því skilyrði að öll önnur þjónusta ríkisins í málaflokknum verði flutt úr Reykjanesbæ til annarra sveitarfélaga.
Bæði Reykjanesbær og Samband sveitarfélaga á Suðurnejsum hafa sent inn umsögn um málið og ekki er hlustað á varnaðarorð okkar. Nú þegar stutt er til kosninga vil ég því gefa þér mitt loforð kæri kjósandi. Hvorki ég né Framsókn í Reykjanesbæ styðjum þessar áætlanir og þær munu ekki ná fram að ganga á okkar vakt nema að undangenginni íbúakosningu. Við virðumst vera ein á þessari skoðun. Hugleiddu það þegar þú ferð að kjósa á morgun.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir,
oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk.









