Skál fyrir fortíðinni, skál fyrir framtíðinni
– „Ég held að þessi sex orð segi allt sem segja þarf.“
Þetta voru fyrstu orð Steinþórs Jónssonar þegar við settumst niður með honum og eiginkonu hans, Hildi Sigurðardóttur, í tilefni af 40 ára afmæli Hótel Keflavíkur og stórhátíðarinnar Vor á Vatnsnesi sem fram fer um helgina.
Hildur tekur boltann hlæjandi:
„Já, ef þetta væri bara svona auðvelt. Steini fer alltaf beint í aðalatriðin og kemst mjög langt á því að einfalda stóru málin. Góð dæmi eru KEF SPA & Fitness og nú Vatnsnes. Hann sagði okkur fjölskyldunni einfaldlega að það væri gaman að gera spa í kjallaranum og gera svo upp húsið á móti hótelinu.
Síðan byrjaði hann bara að grafa holu í gólfið í gömlu Ofnasmiðjunni okkar og nú sjá allir sýnina hans. Við sáum hana ekki þá og hefðum eflaust stoppað hann ef þessi risaáform hefðu verið lögð fram á teikningum frá byrjun. En Steini byrjar einfaldlega og hannar hlutina jafnóðum þegar hann sér möguleikana birtast.
Sama var með Vatnsnes. Fyrir mörgum árum sendi hann bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ erindi um að koma að uppbyggingu hússins en því var formlega hafnað. Ef það er eitt sem minn maður kann ekki þá er það að sætta sig við nei. Hann heldur einfaldlega áfram.
Samningur við okkur var síðan gerður árið 2023 og ég held að öll bæjarstjórnin verði ánægð með að hafa skipt um skoðun þegar hún kemur að skoða framkvæmdirnar. Ég veit að bæjarbúar verða ánægðir að sjá Vatnsnes og þær miklu framkvæmdir sem þar hafa verið unnar undir stjórn Steina, í anda byggingarársins 1934,“ segir Hildur.
Steinþór er fljótur að svara þessari yfirferð Hildar og minnir hana kurteislega á að hann hafi fyrst fengið nei frá henni þegar hún var 15 ára. Nú muni þau hins vegar fagna 40 ára brúðkaupsafmæli í júní, fjórum dætrum, fjórum tengdasonum og þremur barnabörnum ríkari.
„Þetta nei hefur alltaf verið mér innblástur um að gefast aldrei upp og sú ákvörðun á sínum tíma er án efa sú besta sem ég hef tekið og grunnurinn að því sem við fögnum í dag,“ segir hann.
Auk 40 ára afmælis hótelsins varð Hildur, hótelstjórafrúin, sextug þann 11. maí síðastliðinn og því margar ástæður til að fagna hjá KEF fjölskyldunni.
Steinþór með hjólbörurnar við Hótel Keflavík aðeins viku áður en hótelið opnaði 17. maí 1986. Myndin er úr safni VF en hún birtist á baksíðu blaðsins 15. maí 1986.
„Ef við byrjum á fortíðinni, sem þið hjá Víkurfréttum hafið gert svo góð skil í þessu kosninga- og afmælisblaði, þá þótti hugmyndin um hótel í Keflavík ekki arðbær. Mörgum fannst við pabbi fullbjartsýnir þegar við opnuðum hótelið en okkur tókst að sanna hið gagnstæða.
Þegar ég hugsa til baka til 17. maí 1986 var lítið bókað en við vorum samt jákvæð og ákveðin í að fyrsta hótel svæðisins myndi ganga. Í dag er staðan allt önnur og sumarið að stórum hluta fullbókað og margar vikur þegar uppseldar.
Samt eru ákveðin teikn á lofti í heiminum. Hlutirnir breytast hratt og það höfum við upplifað af eigin raun síðustu 40 ár, t.d. þegar herinn fór, í Eyjafjallajökulsgosinu og svo auðvitað í Covid-faraldrinum sem breytti landslaginu á augabragði. Í dag eru það stríð, verkföll og efnahagsástand sem hanga yfir en öll áföll í heiminum hafa með einum eða öðrum hætti áhrif á ferðaþjónustuna.“
Á þessum tímamótum segir Steinþór jafnframt eðlilegt að horfa fram á veginn:
„Við erum sannarlega að horfa til framtíðar og fólk getur verið visst um að við erum hvergi hætt. Reynslan af bæði KEF Restaurant á sínum tíma og síðar KEF SPA hefur sýnt að þetta voru góðar hugmyndir sem hafa styrkt rekstur Hótel Keflavíkur til muna.
Ég er jafnframt sannfærður um að Vatnsneshúsið muni styrkja ímyndina og starfsemina enn frekar með fleiri gistirýmum, auknu funda- og móttökuplássi og betri aðstöðu fyrir veislur og viðburði á komandi árum.“
KEF Center
Eins og við mátti búast kom stór hugmynd fram undir lok samtalsins þegar Steinþór upplýsti að í framhaldi af kaupum þeirra hjóna á hjólbarðaverkstæðinu við Framnesveg, Olís-lóðinni og Aðalstöðinni og lóðum þar í kring hefði hann farið að horfa á framtíð Vatnsness sem eina heild og sæi þar ótrúleg tækifæri.
„Ég sá fljótt að stækkun hótelsins ein og sér og skipulag hverrar lóðar fyrir sig væri ákveðin tímaskekkja. Því ákvað ég að horfa á allt svæðið sem eina heild.
Hugmyndin vatt hratt upp á sig og síðustu tólf mánuði hef ég látið teikna allt svæðið. Ég mun kynna þessa stóru framtíðarsýn að einhverju leyti um helgina og síðar í umfjöllun Víkurfrétta með myndum og teikningum.
Í grunninn yrði Vatnsnes nýtt miðbæjarsvæði með verslun og þjónustu, 1.100 íbúðir og allt tengt glæsilegri skemmtiferðaskipahöfn annars vegar og KEF Lagoon hins vegar með fullkomnu útibaðlóni og heilsulind á heimsmælikvarða við náttúrulega kletta við sjávarsíðuna. Starfsemin yrði svo tengd KEF SPA & Fitness sem háklassa upplifun, innan- og utandyra, en KEF SPA þrefaldast að stærð auk uppbyggingar heilsulindarinnar á norðanverðu Vatnsnesinu.
Frá Vatnsnesi er eitt fallegasta útsýni landsins og nálægðin við Keflavíkurflugvöll og ferðamennina sem þar fara um er sterkur grunnur fyrir framtíðina. Styrkleiki hugmyndarinnar felst í skýrri framtíðarsýn þar sem uppbyggingin byggir á sterkum grunni og fer fram í áföngum þar sem hver eining styrkir hver aðra.
Ég vona að myndirnar og teikningarnar sýni bæjarbúum hversu öflugt samfélag við getum byggt upp og skapi trú á að Reykjanesbær geti orðið eitt flottasta og öflugasta bæjarfélag landsins. Mín draumsýn liggur allavega fyrir,” segir Steinþór að lokum.
Hildur endar viðtalið á þessum orðum:
„Þrátt fyrir allt hefur þessi vegferð verið gríðarlega skemmtileg og mótað líf fjölskyldunnar. Samstarfið við Jón og Unni, tengdaforeldra mína, í upphafi var einstakt og traustið sem þau sýndu okkur Steina gaf allri þessari miklu vinnu tilgang. Það var erfitt að taka ein við þegar þau kvöddu, því samstarf Steina og Jóns var að mínu mati einstakt. Þeir gerðu bókstaflega allt saman. Fyrst tengt Ofnasmiðjunni, svo uppbyggingu hótelsins og þess á milli voru helgarnar notaðar til að byggja bústaði við Meðalfellsvatn og endurbyggja hús fjölskyldunnar á Ólafsfirði enda báðir duglegir og miklir framkvæmdamenn alla tíð.
Ég myndi taka þennan 40 ára slag aftur alla daga og er þakklát bæjarbúum fyrir stuðninginn og velvildina sem er grundvöllur fyrir svona rekstri. Vilji okkar Steina og dætra okkar er að halda áfram að byggja upp fyrirtækið og samfélagið. Reynslan hefur kennt okkur að trúa á það sem við erum að gera og halda ótrauð áfram.“
Í grunninn yrði Vatnsnes nýtt miðbæjarsvæði með verslun og þjónustu, 1.100 íbúðir og allt tengt glæsilegri skemmtiferðaskipahöfn annars vegar og KEF Lagoon hins vegar með fullkomnu útibaðlóni og heilsulind á heimsmælikvarða við náttúrulega kletta við sjávarsíðuna.









