Landhelgisgæslan 21-28. apríl
Landhelgisgæslan 21-28. apríl

Viðskipti

Byggir brú á milli hugmynda og framkvæmda
Sunnudagur 26. apríl 2026 kl. 08:15

Byggir brú á milli hugmynda og framkvæmda

FKA kona mánaðarins á Suðurnesjum

Þuríður H. Aradóttir Braun, starfar sem verkefnastjóri hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og er jafnframt forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness. Hún hefur víðtæka reynslu úr ferðaþjónustu, svæðisþróun og alþjóðlegu samstarfi og hefur lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og þróunar svæðisins á undanförnum árum.

Aðalbros
Aðalbros

Hún er ferðamálafræðingur með þjóðfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands, auk þess sem hún hefur lokið námi í markaðssamskiptum og almannatengslum frá Opna háskólanum í Reykjavík og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Samfélagið í forgrunni

Í starfi sínu vinnur Þuríður að þróun, markaðssetningu og uppbyggingu áfangastaðarins Reykjaness í nánu samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki og hagaðila á svæðinu. Þá kemur hún einnig að verkefnum Reykjanes jarðvangs bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.

Helstu verkefnin snúa að uppbyggingu og þróun ferðaþjónustu, bæði til skemmri og lengri tíma. Þar felst meðal annars stefnumótun, verkefnastjórnun í innlendum og alþjóðlegum samstarfsverkefnum og stuðningur við atvinnulíf og samfélag, sérstaklega á tímum áskorana.

Það sem gerir starfsemina sérstaka að hennar mati er hversu nátengd hún er samfélaginu. „Við erum ekki aðeins að markaðssetja áfangastað heldur að vinna með raunverulegu fólki, fyrirtækjum og samfélögum sem eru í stöðugri þróun. Reykjanesið er kraftmikið svæði þar sem náttúra, nýsköpun og áskoranir mætast og það kallar á sveigjanleika, samvinnu og skýra sýn.“

Brú á milli hugmynda og framkvæmda

Þuríður segir sig lánsama að vinna við það sem henni finnst bæði skemmtilegt og gefandi. Hún vinnur mikið með alþjóðlegum samstarfsverkefnum sem tengjast sjálfbærni, nýsköpun og uppbyggingu samfélaga og fær þar tækifæri til að tengja Reykjanes við stærra samhengi.

Ferill hennar hefur þróast í kringum ferðaþjónustu, svæðisþróun og verkefnastjórnun þar sem hún hefur unnið með fjölbreyttum hópum fólks, bæði innanlands og erlendis. Í dag snýst hennar hlutverk að miklu leyti um að byggja brú á milli hugmynda og framkvæmda og skapa raunveruleg áhrif fyrir samfélagið.

Kraftur og samkennd á Suðurnesjum

Aðspurð um kosti þess að búa á Suðurnesjum nefnir hún fyrst og fremst samfélagið sjálft. „Það er ótrúlega magnað að tilheyra samfélagi eins og á Suðurnesjum. Hér er nálægðin við náttúruna mikil, krafturinn í samfélaginu sterkur og samkenndin áberandi. Það er stutt í allt en samt mikið rými til að vaxa, skapa og hafa áhrif.“

Mikilvægi tengslanets og sýnileika kvenna

Þuríður hefur komið að starfi FKA Suðurnesja frá upphafi og telur mikilvægt að vera hluti af vettvangi þar sem konur styðja hver aðra, deila reynslu og skapa tækifæri.

„FKA Suðurnes er öflugur vettvangur sem skapar tengingar, styður við konur í atvinnulífinu og eykur sýnileika þeirra. Slík félag skiptir miklu máli fyrir þróun samfélagsins. Öflug þátttaka kvenna í atvinnulífinu hefur bein áhrif á uppbyggingu og ímynd svæðisins og því er mikilvægt að við vinnum saman að því að efla það.“

Að hennar mati veitir FKA bæði tengslanet, innblástur og vettvang til að taka þátt í umræðu og þróun. „Það skiptir miklu máli að hafa aðgang að samfélagi kvenna sem deila svipuðum áskorunum og tækifærum.“

„Taktu pláss – ekki bíða eftir leyfi“

Að lokum leggur Þuríður áherslu á mikilvægi þess að konur treysti eigin getu og taki virkan þátt.

„Stattu með sjálfri þér og treystu því að þú eigir fullt erindi. Vertu óhrædd við að taka þátt, prófa þig áfram og gera mistök – því þannig lærirðu og vex.“

Hún bætir við að samfélagið mótist af þátttöku okkar allra:

„Oftar en ekki standa konur á bak við stór og krefjandi verkefni án þess að fá viðurkenningu – því þurfum við að breyta. Við mótum samfélagið saman með því hvernig við styðjum hver aðra.“

Og skilaboðin eru skýr:

„Taktu pláss. Ekki bíða eftir leyfi.“

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir