Föstudagur 24. apríl 2026 kl. 09:43

Væri mikill heiður að verða fyrsta konan sem bæjarstjóri

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins og formaður bæjarráðs síðustu fjögur árin, segir Reykjanesbæ vera að stíga út úr áratug tiltektar og inn í tímabil framtíðarinnar. Hún kveðst hafa öðlast dýrmæta reynslu sem starfandi bæjarstjóri í ólgusjó eldgosa og innviðabresta og býður sig nú fram til að leiða sveitarfélagið á nýjum forsendum. Kjörtímabilið sem senn er á enda hefur verið viðburðaríkt í Reykjanesbæ. Halldóra Fríða horfir stolt til baka á síðustu fjögur ár og segir meirihlutann hafa fylgt málefnasamningi sínum eftir af mikilli fylgni, þrátt fyrir að fólk hafi týnst úr brúnni í önnur verkefni á leiðinni. Sjálf hefur hún verið í eldlínunni, bæði sem bæjarfulltrúi, formaður bæjarráðs og sem starfandi bæjarstjóri í fjarveru Kjartans Más vegna veikinda hans.

Í spilaranum hér að ofan er viðtalið við Halldóru Fríðu í heild sinni.