Kaupfélag Suðurnesja hagnast um 1,1 milljarð: Meðal stærstu hluthafa í Dröngum
Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja (KSK) var haldinn þann 19. mars síðastliðinn í húsakynnum félagsins að Krossmóa 4a. Fundurinn markar tímamót í sögu félagsins sem fagnaði 80 ára afmæli á síðasta ári, en hlutverk þess hefur verið endurskilgreint eftir sölu á hlutabréfum í Samkaupum.
Fundurinn var vel sóttur en rétt til setu hafa 60 fulltrúar sem kjörnir eru á fundum sex deilda félagsins. Eysteinn Eyjólfsson var fundarstjóri og Guðbjörg Ingimundardóttir fundarritari.
Hagnaður og breytt eignasafn
Sigurbjörn Gunnarsson, formaður stjórnar, flutti skýrslu þar sem fram kom að hagnaður ársins 2025 nam 1,1 milljarði króna. Þessi mikli hagnaður skýrist einkum af söluhagnaði hlutabréfa í Samkaupum, en hluturinn var seldur í skiptum fyrir hlut í Dröngum hf. Við þessi skipti varð KSK næststærsti hluthafi Dranga, sem eiga og reka fyrirtæki á borð við Orkuna, Löður og Lyfjaval.
Bókfært eigið fé kaupfélagsins nam 8,4 milljörðum króna í lok árs 2025. Dótturfélagið KSK eignir ehf., sem á á fjórða tug fasteigna, þar á meðal verslunarmiðstöðina við Krossmóa, skilaði sömuleiðis góðri afkomu eða um 85 milljónum króna í hagnað.
Tæplega 7.000 félagsmenn
Félagsmönnum fækkaði um 150 á milli ára og eru þeir nú tæplega 7.000 talsins. Skýrist fækkunin aðallega af aðstæðum í Grindavíkurdeild félagsins. Þótt KSK eigi ekki lengur beinan hlut í verslunarrekstri munu félagsmenn áfram njóta sérstakra kjara í verslunum Samkaupa samkvæmt samkomulagi þar um.
Á starfsárinu hélt stjórnin 16 fundi þar sem ný stefna félagsins var mótuð. Framvegis vill félagið vera traustur og sýnilegur þátttakandi í atvinnulífi á Suðurnesjum og öflugur bakhjarl samfélagsins. Sem dæmi um samfélagslegan stuðning var Velferðarsjóði Suðurnesja veittur einnar milljónar króna styrkur á sl. ári.
Breytingar á stjórn eftir 37 ár
Mikil tímamót urðu við stjórnarkjör þar sem Guðbjörg Ingimundardóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Hún sat í stjórn félagsins í 37 ár og voru henni færðar þakkir fyrir ómetanlegt starf. Halldóra G. Jónsdóttir kom ný inn í varastjórn félagsins.
Stjórn KSK er skipuð þannig:
- Formaður: Sigurbjörn Gunnarsson
- Varaformaður: Eysteinn Eyjólfsson
- Ritari: Inga Brynja Magnúsdóttir
- Meðstjórnendur: Garðar Newman og Anna Birgitta Geirfinnsdóttir
- Varastjórn: Jóngeir H. Hlinason, Andri Freyr Stefánsson og Halldóra G. Jónsdóttir.
Garðar Newman, fulltrúi KSK í stjórn Dranga, og Brynjar Steinarsson, framkvæmdastjóri KSK eigna, fluttu einnig fundarmönnum yfirlit yfir uppbyggingarstarf og framtíðarhorfur í rekstri þessara félaga.






