Metfjöldi umsókna í sumarstörf Bláa Lónsins
Gífurlegur áhugi er á sumarstörfum hjá Bláa Lóninu hf. í ár en ríflega 7.500 umsóknir bárust um 200 störf sem ráðið verður í fyrir komandi sumar hjá félaginu. Þetta er mesti fjöldi umsókna sem fyrirtækið hefur fengið til þessa og ríflega þreföldun frá því sem áður hefur verið.
Hjá Bláa Lóninu hf. og dótturfélögum þess starfa um 850 starfsmenn bæði hérlendis og erlendis. Innan Bláa Lónsins eru fjölbreytt störf í þjónustu, upplifun, framleiðslu, hönnun, vísindarannsóknum, tækni og stjórnun. Starfsfólk Bláa Lónsins er með ólíkan bakgrunn, menntun, færni og reynslu. Lögð er áhersla á sterka liðsheild þar sem starfsfólk fær þjálfun, ábyrgð og tækifæri til að þróast í starfi. Mikill áhugi á störfum endurspeglar mikilvægi ferðaþjónustu sem atvinnugreinar fyrir ungt fólk og þau fjölbreyttu tækifæri sem þar bjóðast.
„Það er afar ánægjulegt að sjá þennan mikla áhuga á störfum hjá okkur. Við leggjum ríka áherslu á að skapa aðstæður þar sem fólk fær tækifæri til að blómstra í starfi og þróa hæfileika sína“ segir Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, menningar og vellíðunar hjá Bláa Lóninu.
Bláa Lónið hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar sem framúrskarandi vinnustaður, þar á meðal European og Global Inspiring Workplaces Awards árið 2025, auk viðurkenninga á borð við Vinnustaður í fremstu röð frá Moodup. Bláa Lónið var einnig valið Menntafyrirtæki atvinnulífsins árið 2023
Áhugi á sumarstörfum endurspeglar ekki aðeins sterka stöðu Bláa Lónsins sem vinnustaðar heldur einnig mikilvægi upplifunarferðaþjónustu sem atvinnugreinar sem býður upp á fjölbreytt og spennandi tækifæri.
Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, menningar og vellíðunar hjá Bláa Lóninu.




