KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Guðjón Þorgils heiðraður í FS
Á myndinni eru Guðjón Þorgils og Kristján skólameistari ásamt þeim Hildi, Tristan og Mikael Mána frá NFS. Mynd af vef skólans.
Mánudagur 13. apríl 2026 kl. 15:31

Guðjón Þorgils heiðraður í FS

Guðjón Þorgils Kristjánsson var heiðraður á sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja í hádeginu í dag en hann fór með sigur af hólmi í Söngkeppni framhaldsskólanna um helgina, eins og greint hefur verið frá hér á vef Víkurfrétta.

Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti Guðjóni blómvönd ásamt fulltrúum nemendafélagsins NFS og að því loknu klöppuðu viðstaddir og fögnuðu sigurvegaranum.


Guðjón er 18 ára Sandgerðingur sem er á 2. ári í skólanum. Hann vann Hljóðnemann, söngkeppni NFS, í janúar og vann sér þar með keppnisrétt í framhaldsskólakeppninni. Áður hafði Guðjón unnið Söngkeppni Samfés árið 2024.


Nesraf
Nesraf