Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Tekist á um sumarstörf 17 ára: Atvinnumál eða tómstundir?
Frá vinnuskóla í Reykjanesbæ. Mynd úr safni.
Mánudagur 13. apríl 2026 kl. 10:09

Tekist á um sumarstörf 17 ára: Atvinnumál eða tómstundir?

Málefni 17 ára ungmenna og aðgengi þeirra að sumarstörfum voru til umræðu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar eftir kynningu á starfsemi tómstundamiðstöðvar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram bókun þar sem kallað er eftir skýrri aðgreiningu á milli almennrar þjónustu við ungmenni og sumarstarfa. Telja þeir að málefni sumarstarfa eigi að heyra undir atvinnustefnu sveitarfélagsins fremur en að vera hluti af félags- og forvarnastarfi.

Margrét Þórarinsdóttir (D) benti á að vegna hærri aldursviðmiða á almennum vinnumarkaði ættu 17 ára ungmenni sífellt erfiðara með að finna vinnu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að aðgengi að atvinnu sé stórt velferðarmál og að sveitarfélagið þurfi að bregðast við þessari þróun með sjálfstæðum og markvissum hætti, óháð hefðbundnu tómstundastarfi.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Meirihlutinn vísar málinu til bæjarráðs

Meirihluti bæjarstjórnar, skipaður fulltrúum Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar, tók undir áhyggjur minnihlutans af stöðu atvinnumála hjá ungu fólki undir 18 ára aldri. Í bókun meirihlutans, sem Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) kynnti, segir að eðlilegt sé að rýna málið betur.

Meirihlutinn leggur til að farið verði í greiningarvinnu á því hversu mörg ungmenni standi án starfa í sumar, hver kostnaðurinn væri við að fjölga störfum og hvernig ráðningum hjá sveitarfélaginu sé háttað. Málinu var í kjölfarið vísað til frekari vinnslu í bæjarráði þar sem tekin verður ákvörðun um næstu skref.