Svekkjandi tap hjá Keflavík í fyrsta leik ársins í Bestu deildinni
Keflvíkingar töpuðu í sínum fyrsta leik í Bestu deild karla í knattspyrnu í ár þegar þeir mættu KR í Vesturbænum. Þeir röndóttu skoruðu tvö mörk í blálokin og hirtu sigurinn af gestunum úr bítlabænum, 3-2.
Keflvíkingurinn í KR-liðinu, Arnór Yngvi Traustason, kom sínu nýja liði á bragðið strax á 6. mínútu. Ekki eitthvað sem stuðningsmenn Keflvíkur gátu brosað yfir. Þrátt fyrir það misstu Keflvíkingar ekki dampinn, vörðust vel bitlausum sóknum heimamanna og áttu góðar skyndisóknir en það var uppskriftin fyrir þennan leik.
Í síðari hálfleik áttu Keflvíkingar fleiri hættulegar skyndisóknir og sýndu oft á tíðum skemmtileg tilþrif, voru óhræddir við KR-inga sem voru þó áfram meira með boltann.
Á 55. mínútu bar þetta árangur þegar Stefán Ljubicic jafnaði leikinn eftir stoðsendingu frá Muhamed Alghoul sem átti einnig næstu stoðsendingu sem Stefán nýtti sér á 79. mínútu eftir góða sókn Keflvíkinga. Frábær kafli Keflvíkinga. Heimamenn hertust við mótlætið og skoruðu tvö mörk í blálokin á innan við tveimur mínútum, það seinna á 88. mínútu. Grátlegt fyrir Keflvíkinga. Nýliðarnir fengu dauðafæri í uppbótartíma þegar Ásgeir Orri, markvörður Keflvíkinga fór í sókn og skallaði boltann eftir hornspyrnu. Boltinn fór framhjá varnarmönnum KR og rúllað að marklínunni og fjarstönginni. Keflvíkingurinn Nacho Heras kom aðvífandi og var sentímetrum frá því að ýta boltanum yfir marklínuna.
Svekkjandi tap í fyrsta leik Keflavíkur í Bestu-deildinni í ár en leikur þeirra lofar góðu og þeir gáfu heimamönnum ekkert eftir.





