Nesraf
Nesraf

Íþróttir

Grindavík sló Keflvík út úr Mjólkurbikarnum eftir vító- fara á Skagann og UMFN í Mosfellsbæ
Eiður Orri Ragnarsson skorar glæsimark fyrir Keflavík. Mynd/Helgi Þór Gunnarsson.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 17:40

Grindavík sló Keflvík út úr Mjólkurbikarnum eftir vító- fara á Skagann og UMFN í Mosfellsbæ

Grindvíkingar drógust gegn Bestu-deildarliði Skagamanna og Njarðvíkingar fara í Mosfellsbæ og leika gegn heimamönnum í Aftureldingu í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í knattspyrny karla. Grindvíkingar gerðu sér lítið fyrir og unnu Keflvíkinga í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í knattspyru en leikurinn fór fram á annan í páskum í knatthúsi Hauka í Hafnarfirði. Lokatölur voru 1-1 eftir venjulegan leiktíma en Grindavík hafði betur í vítaspyrnukeppni.

Að venju var hart barist þegar þessi nágrannalið mætast. Grindavík var betri aðilinn í fyrri hálfleik en Keflavík í þeim síðari. Í framlengingu skoraði Eiður Orri Ragnarsson á 119. mínútu eftir stoðsendingu frá Davíð Helga Aronssyni og Keflvíkingar héldu að þeir væru komnir áfram. Grindvíkingar voru ekki á því og jöfnuðu leikinn mínútu síðar, í uppbótartíma, þegar Rafael Victor skoraði með skalla eftir stoðsendingu frá Inga Þór Sigurðssyni. 

Í vítaspyrnunni varði Ásgeir Orri fyrstu spyrnu Grindvíkinga en Keflavík misnotaði tvö víti, fyrsti Ásgeir Páll Magnússon og síðan Marin Mudrazija sem fékk tvö tækifæri til að skora því Hjörvar Daði markvörður varði en hreyfði sig af línunni of snemma. Hjörvar Daði markvörður varði svo aftur alveg eins og slaka spyrnu frá Marin. Damir Muminovic skoraði úr síðustu spyrnu UMFG og tryggði bikarsigur.

Nesraf
Nesraf

Við höfðum áður sagt frá sigri UMFN á Sauðárkróki en Njarðvíkingar fara í Mosfellsbæ í 16-liða úrslitunum.

Hér eru myndskeið frá báðum leikjunum.