Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Þúsund heiðlóur í hóp á Garðskaga
Fimmtudagur 9. apríl 2026 kl. 09:25

Þúsund heiðlóur í hóp á Garðskaga

Lóan er komin að kveða burt snjóinn, er sungið á þessum árstíma. Og lóan er mætt til landsins í stórum hópum. Vart varð við fyrstu heiðlóurnar á Garðskaga um páskana og í gær sást til hennar í stórum hópum.

Talið er að um eitt þúsund heiðlóur hafi verið í hópi fugla sem lenti á túni við Garðskaga í gærdag. „Himininn var svartur af fugli,“ sagði fuglaáhugamaður í samtali við Víkurfréttir.

Nesraf
Nesraf

Það er ekki bara lóan sem er í stórum hópum. Glöggir hafa tekið eftir stórum flekkjum af fuglum í Garðsjónum síðustu daga. Þar er æðarfugl að éta loðnuhrat, loðnu sem búin er að hrygna.

Ýmsir aðrir fuglar hafa einnig sýnt sig. Tjaldurinn er mættur á svæðið og þá heyrðist í hrossagauki í gær.

Vorið og sumarið eru handan við hornið!

Myndina af lóunni með þessari frétt tók Guðmundur Hjörtur Falk og gaf okkur góðfúslegt leyfi til að birta.