KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Krían mætt til Grindavíkur vikum fyrr en venjulega
Krían er mætt og var mynduð við Grindavík í dag. Myndir: Guðmundur Hjörtur Falk
Miðvikudagur 8. apríl 2026 kl. 20:20

Krían mætt til Grindavíkur vikum fyrr en venjulega

Það eru sannkallaðir vorboðar í lofti í Grindavík, en krían (Arctic Tern) er mætt á svæðið óvenju snemma þetta árið. Ljósmyndarinn Guðmundur Hj. Falk greindi frá komu kríunnar og birtir myndir því til staðfestingar sem voru teknar að Stað í Grindavík eftir ábendingu frá vini sínum, Eyjólfi Vilbergssyni, sem sá fuglinn fyrstur.

Nýtt komumet

Samkvæmt Guðmundi er um að ræða nýtt komumet fyrir þennan harðgerða langferðafugl. Krían sést jafnan ekki fyrr en síðari hluta apríl eða í byrjun maí, en þessi mæting er um 2 til 3 vikum á undan áætlun.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í fyrstu lék vafi á því hvort um væri að ræða tegundina Common Tern, en eftir að Guðmundur náði myndum af fuglinum staðfesti hann að um væri að ræða Arctic Tern, okkar ástkæru kríu.

Þessi snemmbúna koma vekur athygli fuglaáhugamanna, enda hefur krían aldrei sést jafn snemma að vori hér á landi. Það virðist því sem sumarið ætli að mæta með miklum látum í ár.

Fleiri vorboðar

Það eru fleiri vorboðar á ferðinni því lóan sást á Garðskaga um páskana.