KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Aðsent

Það næstum sýður upp úr í heita pottinum
Miðvikudagur 8. apríl 2026 kl. 13:24

Það næstum sýður upp úr í heita pottinum

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí næstkomandi. Á næstu dögum og vikum munu karlar og konur flykkjast til þátttöku á hinum pólitíska vettvangi fyrir sveitarfélagið sitt. Venju samkvæmt mun fjölbreytt flóra fólks bjóða sig fram hér í Reykjanesbæ sem skiptir sér í flokka eftir hinu pólitíska litrófi landsmálanna. Gott fólk sem fylgir stefnum og straumum þeirra flokka sem það aðhyllist í skoðunum og hugsun.

Margir frambjóðendur munu nú stíga fram á ritvöllinn og skrifa hinar ýmsu blaðagreinar í Víkurfréttir og á samfélagsmiðla með það að markmiði að kynna sig og framboðin sín fyrir kjósendum, að reyna að sannfæra okkur kjósendur um að kjósa rétt. Sem sagt endurtekning frá síðustu sveitarstjórnarkosningum! Oft sömu málefnin og sama fólkið í framboði.

Nesraf
Nesraf

Bæjarbúum verður síðan drekkt í kosningaloforðum, loforðum sem oft hafa heyrst áður. Reynt verður af öllum mætti að sannfæra samsveitunga okkar um hvern sé best að kjósa. Kosningar eru eins og íþróttakappleikur, menn keppast við að ota sínum tota, sér og sínum til sigurs.

Í framboð

Þetta er nákvæmlega það sem ég, hvítur, miðaldra karlmaður í Reykjanesbæ, ætla mér nú að gera. Ég er mættur á ritvöllinn og mun taka þátt í dreifingu loforða til samsveitunga minna.

Ég skipa annað sæti á lista Miðflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Stefnan er tekin til sigurs. Enginn afsláttur á því, enda keppnisskap til staðar.

Ég mun nú, eins og aðrir frambjóðendur, reyna að koma skilaboðum til ykkar kæru samborgarar mínir. Ég mun hugsanlega skrifa einhverjar blaðagreinar sem ég mun reyna að fá birtar hjá Páli Ketilssyni og hans fólki á Víkurfréttum. Síðan mun ég vippa mér inn á samfélagsmiðlana til að vekja enn frekar athygli á framboði mínu fyrir Miðflokkinn hér í Reykjanesbæ. Hugsanlega mun ég baka köku á TikTok, dansa eða vinna með sleggjuna í myndbandi á samfélagsmiðlum. Það er eitthvað nýtt sem hefur aldrei verið gert áður hér á landi og mun vekja feikimikla athygli!!

Að flytja heim

Ég flutti til og hef búið í Reykjanesbæ síðan árið 1990, eignaðist þá mína fyrstu íbúð. Á tímabili bjó ég erlendis og flutti heim í Reykjanesbæ í júli 2008 eftir rúmlega fimm ára búsetu í Skotlandi. Merkilegt er að þegar maður býr erlendis, þá lærir maður að meta svo margt af því sem manni þótti svo sjálfsagt þegar maður bjó hér á klakanum. Eitt af því sem ég saknaði mjög voru sundlaugarnar og þegar ég flutti heim þá fór ég að venja komur mínar nokkrum sinnum í viku í sundlaugina í Keflavík. Aðallega bara í heita pottinn svo það sé bara sagt. Já, strax að loknum kvöldverði og fréttum fer ég í heita pottinn nokkrum sinnum í viku. Þetta var gert þrátt fyrir að það væri heitur pottur á sólpallinum heima hjá mér.

Heiti potturinn

Sundlaugin í Keflavík er fín sundlaug og öll aðstaða þar nokkuð góð – og vera eigandi að heitum potti þá er það 100% ljóst að aðalaðdráttaraflið er ekki eingöngu heiti potturinn í Vatnaveröld, heldur er það félagsskapurinn og fólkið sem maður hittir þar og kynnist. Ég var ekki búinn að sækja heitu pottana í marga mánuði þegar fjármálahrunið 2008 skall á með „Guð blessi Ísland“-kveðjunni sem við þekkjum. Eftir hrunið breyttist stemmningin í heita pottinum og fleira fólk tók að venja komur sínar þangað.

Ég var svo lánsamur að vera duglegur að mæta í heita pottinn og kynnast þar fastagestunum. Að taka þátt í umræðunum um málefni líðandi stundar sem gátu verið allt milli himins og jarðar. Allt var rætt og þarna voru margir sjálfskipaðir sérfræðingar sem höfðu sínar skoðanir, lausnir og tillögur til úrbóta. Mikið rætt um skilningsleysi stjórnvalda á ýmsum málefnum og ekki nema von að allt væri að fara til helvítis að mati pottorma. Já, allt að fara til helvítis. Ég er enn að mæta í heita pottinn og mér heyrist að enn sé allt að fara til helvítis núna árið 2026. Sem sagt, lítið sem ekkert breyst – en ekkert er enn farið til helvítis svo ég viti. Það eina sem hefur breyst er að aðstaðan í sundlauginni er orðin betri og ég og hinir karlarnir og konurnar orðin aðeins eldri. Við erum enn í heita pottinum, takandi þátt í sjóðheitum umræðum um málefni dagsins sem eru oft á suðupunkti.

Fastagestir

Fastagestirnir í heitu pottunum sem hér um ræðir er hópur um tuttugu karlmanna og fjögurra kvenna. Fólks á mjög mismunandi aldri, ólíkum starfsvettvangi og víðs vegar að úr samfélaginu okkar hér í Reykjanesbæ. Má segja að þarna sé saman kominn þverskurður samfélagsins okkar, karlar og kerlingar. Það losnar mjög um málbeinið og skoðunarskipti fólks í hitanum í heita pottinum. Flestir sem þarna eru eru mjög kjarnyrtir með sterkar og oft ólíkar skoðanir sem fólk er tilbúið að tjá sig um. Þarna eru saman komnir margir sjálfskipaðir sérfræðingar sem þykjast hafa vit á og hafa réttar skoðanir á öllu því sem er í gangi í heimsmálunum hverju sinni. Skemmtilegt er að fylgjast með hvað menn geta verið trúir sinni grunnhugmyndafræði, um hvað er rétt og hvað rangt út frá pólitískum og uppeldislegum gildum. Því eru sterk skoðunarskipti og rökræður pottormanna daglegt brauð þegar leysa skal mikilvægustu málefni bæjarfélagsins, þjóðarinnar eða heimsmálanna í heita pottinum. Heiti potturinn er því mjög oft við suðumark þegar tekist er þar á um málefni líðandi stundar.

Sérfræðingar

Í kjölfar efnahagshrunsins 2008 urðu pottormar miklir sérfræðingar í efnahagshruninu og rannsóknarskýrslu Alþingis. Þarna draup sérfræðikunnátta úr hverri svitaholu pottormanna og sitt sýndist hverjum. Þetta var orðið það slæmt að á tímabili þurfti að setja reglur um hvað mætti ræða hvern dag til að menn myndu ekki koma þunglyndir heim úr sundlauginni.

Það mátti t.d. ekki ræða Sparisjóðinn og hrunið nema einu sinni í viku, á fimmtudögum. Fimmtudagar voru því nefndir fúlir fimmtudagar. Ekki mátti ræða neitt neikvætt á mánudögum og föstudögum. Með þessu var reynt að stýra umræðunni oftar í jákvæðari áttir, brandarar og skemmtisögur var boðið velkomið. Þetta var gert til að leyfa neikvæðninni ekki að vera of mikið við völd. Í dag er meira frjálsræði í umræðunni og menn ræða nánast hvað sem er, hvenær sem er. Mikið er auðvitað rætt um Trump, verðbólguna, hælisleitendamál og mikil vonbrigði með Valkyrjustjórnina sem svíkur almenning í landinu með gjalda- og skattahækkunum.

Vinátta

Síðan árið 2008 hefur virkilega gott og ólíkt fólk komið saman þarna, allir með góðan tilgang og trúir sinni „réttu“ skoðun. Jú, auðvitað er stundum farið í manninn en ekki málefnið, sem er óvinsælt, en menn átta sig oftast á því og róast. Það sem er virkilega merkilegt er að þarna hefur orðið til mjög sérstakur félagsskapur karla og kvenna, góður vinskapur hefur myndast meðal ólíkra einstaklinga víðs vegar úr samfélaginu. Þarna er félagsskapur þar sem fólk gefur sér tíma fyrir hvert annað. Ef einhver forfallast lengi, þá er kannað með viðkomandi. Það ríkir sannur náungakærleikur meðal pottorma. Þarna eru saman komnir ólíkir vinir og kunningjar sem hafa kynnst í málefnaflóði líðandi stundar, í hita leiks, jafnvel þegar allt var á suðupunkti í umræðu dagsins í heita pottinum.

Síðan árið 2010 hefur þessi hópur haldið á hverju ári kótilettukvöld, jólahlaðborð, þorrablót og vorgrill sem haldin eru heimahúsum eða fyrirtækjum pottormanna. Þá hittast menn ekki við suðumark í heita pottinum heldur nýtur fólkið samveru við hvert annað þar sem góður matur er borðaður og skolað niður með fljótandi veigum að smekk hvers og eins.

Líklega er þetta einn furðulegasti félagsskapur Suðurnesja þótt víða væri leitað.

Ólíkt fólk

Það er gaman að segja frá því að núna í dag er farið að bætast við þennan hóp fólks af erlendum uppruna. Menn sem tala þokkalega íslensku, eiga fjölskyldur, starfa hér og hafa sterkar skoðanir sem þeir þora að deila með okkur í pottinum. Þessum nýju félögum hefur verið tekið mjög fagnandi og eru kærkomin viðbót í samfélagið okkar. Þarna er fólk sem er saman komið í heita pottinum af ólíkum uppruna, með ólíkt móðurmál, með misjafnar skoðanir og þarfir, en með það eitt að markmiði að kynnast fólki og ræða málefni líðandi stundar sem hvílir á þeim þann daginn.

Þarna er svo sannarlega þverskurður samfélagsins okkar, gott fólk sem er sammála um það eitt að allir vilji búa í góðu samfélagi hér í Reykjanesbæ og á Íslandi. Og það vil ég svo sannarlega og fjölskylda mín líka gera. Þess vegna vil ég láta til mín taka á vettvangi bæjarmála í Reykjanesbæ á næsta kjörtímabili og býð fram krafta mína og reynslu.

Kjarni málsins

Ég vil leggja mitt af mörkum til Reykjanesbæjar og hafa áhrif. Ekki bara tala um hvað skal gera í heita pottinum í Vatnaveröld. Ég vil nýta krafta mína, reynslu og þekkingu til uppbyggingar á góðu og öflugu samfélagi fyrir okkur öll.

Ég legg áherslu á að stuðla að skynsemishyggju í rekstri, atvinnuuppbyggingu, framsæknu og öruggu samfélagi, kröftugu íþrótta- og menningarlífi og sterku menntakerfi.

Reykjanesbær þarf stjórnmálafólk sem þorir að forgangsraða með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi. Taka þarf rekstur sveitarfélagsins föstum tökum af ábyrgð og skynsemi. Reksturinn þarf að spegla heilbrigða skynsemi eins og öflug fyrirtæki eru rekin. Við þurfum að nýta tækifærin í atvinnuuppbyggingu og tryggja sterkt og öflugt atvinnulíf. Innviðirnir okkar eru undir óviðunandi álagi og það er kominn tími á hreinskilna umræðu um það sem betur má fara og læra að afþakka slæma samninga.

Ég er í framboði fyrir Miðflokkinn í Reykjanesbæ og skipa annað sæti á listanum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Rúnar Fossádal Árnason

Tækifærið er núna – Fyrir ábyrga stjórnun og sterka innviði.

X-M fyrir Miðflokkinn