Frístundastyrkur - fjárfesting í virkni og vellíðan eldri borgara
Frístundastyrkur fyrir eldri borgara var tekinn upp af núverandi meirihluta á kjörtímabilinu og er einföld en afar áhrifarík leið til að styðja við heilsu, virkni og lífsgæði á efri árum. Þannig geta íbúar í Reykjanesbæ, 67 ára og eldri, sótt um 45.000 króna frístundastyrk árlega til að niðurgreiða þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Sá stuðningur skiptir miklu máli, ekki síst til að vega upp á móti kostnaði sem annars gæti verið hindrun fyrir þátttöku. Þessi frábæra aðgerð meirihlutans hefur einnig ýtt við fyrirtækjum í heilsueflingu sem hafa sérsniðið námskeið fyrir þennan hóp og er frístundastyrkurinn afar vel nýttur.
Eldra fólk er fjölbreyttur hópur með missterka fjárhagsstöðu. Fyrir suma er lítið mál að greiða fyrir námskeið eða líkamsrækt, en fyrir aðra getur kostnaðurinn ráðið úrslitum. Frístundastyrkurinn jafnar stöðuna og tryggir að fleiri hafi raunverulegt val um að taka þátt í fjölbreyttri hreyfingu og félagsstarfi. Það er mikilvægt réttlætismál og fellur vel að markmiðum laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og laga um málefni aldraðra, þar sem áhersla er lögð á sjálfstæði, þátttöku og vellíðan.
Ávinningurinn er margþættur. Samkvæmt ráðleggingum embættis landlæknis ætti eldra fólk að hreyfa sig reglulega til að viðhalda styrk, jafnvægi og færni. Alþjóðaheilbrigðismálastofnuni
Áhrifin eru þó ekki síður félagsleg. Félagsleg samvera og þátttaka í skipulögðu starfi hefur bein áhrif á lífsgæði og dregur úr einmanaleika. Með því að nýta frístundastyrk í sund, leikfimi, dans, jóga eða önnur námskeið skapast vettvangur fyrir tengsl, gleði og virk samskipti. Frístundastyrkur til eldri borgara er því ekki aðeins niðurgreiðsla heldur fjárfesting í heilsu og félagslegri þátttöku sem styrkir samfélagið og í mannsæmandi öldrun.
Það er ekki sjálfgefið að slík úrræði verði til, þau eru afrakstur skýrrar stefnumótunar og pólitískrar forgangsröðunar. Fulltrúar Framsóknar hafa lagt áherslu á að efla frístundastyrki og standa heils hugar að baki slíkum aðgerðum sem styðja við virkt og heilbrigt líferni eldri borgara. Framsókn hefur jafnframt lagt ríka áherslu á heilsueflandi samfélag, þar sem virkni, sjálfstæði og vellíðan eru leiðarljós.
Framsókn vill halda áfram að efla forvarnir á breiðu sviði fyrir eldra fólk og auka vitund um mikilvægi hreyfingar, svefns, mataræðis og félagslegrar þátttöku. Frístundastyrkurinn er dæmi um slíka stefnu í framkvæmd. Að styðja eldri borgara með þessum hætti eru skýr skilaboð um að virkni, heilsa og vellíðan skipta máli, um alla ævi.
Ásta María Guðmundsdóttir,
forstöðukona og verkefnisstjóri heilsueflandi samfélags, frambjóðandi Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,
leik- og grunnskólakennari, frambjóðandi Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar





