Tækifærið er núna! Öflugri Reykjanesbær með Miðflokknum
Reykjanesbær er samfélag sem býr yfir gríðarlegum krafti. Við í Miðflokknum fögnum því að vera hluti af þessum bæ. Við getum samt sem áður ekki lengur horft fram hjá því að bærinn okkar stendur á krossgötum. Vöxtur er af hinu góða, en hann má aldrei verða á kostnað grunnþjónustunnar. Við sjáum það að innviðirnir okkar eru undir óviðunandi álagi og það þarf kjark til að segja hlutina nákvæmlega eins og þeir eru.
Við mætum til leiks með það að markmiði að gera Reykjanesbæ að eftirsóknarverðasta sveitarfélagi landsins að öllu leyti. Til þess þurfum við stjórnmálamenn sem þora að forgangsraða með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi.
Ábyrgur rekstur
Rekstur sveitarfélags á að vinna að festu og ábyrgð, nákvæmlega eins og fólk rekur heimili sín eða fyrirtæki. Við viljum innleiða nýja hugsun í bæjarstjórn þar sem gagnsæi og heiðarleiki í fjármálum eru í forgrunni. Ábyrgð kjörinna fulltrúa í nefndum og ráðum er mikil og tryggja þarf fagmennsku allra fulltrúa.
Hver króna sem íbúar greiða í útsvar á að skila sér í hágæða þjónustu, ekki í vaxandi bákni eða skriffinnsku. Við viljum gera Reykjanesbæ vinnustaðavænan með því að skera upp skrifræðið og flýta ferlum fyrir atvinnulífið og iðnaðarmenn sem vilja framkvæma. Tækifærið til að hagræða og efla skilvirkni er núna.
Innviðirnir og raunveruleiki í málum hælisleitenda
Það er kominn tími á hreinskilna umræðu. Fjöldi fólks í leit að alþjóðlegri vernd sem sest hefur að í bænum á skömmum tíma hefur haft veruleg áhrif á innviði okkar – bæði félagsþjónustu, heilbrigðiskerfi og skólana.
Innviðirnir okkar hafa þolmark. Miðflokkurinn leggur áherslu á að Reykjanesbær geti ekki tekið á móti fleiri en kerfið ræður við. Fullt fjármagn, vitneskja og samþykki, að okkar hálfu, verður að fylgja hælisleitendum. Eins og staðan er núna er mikið álag á innviði sveitarfélagsins. Við munum setja hagsmuni og öryggi núverandi íbúa í fyrsta sæti og krefjast þess að ríkið standi við bakið á okkur, svo gæði þjónustunnar rýrni ekki frekar.
Ný nálgun í skólamálum
Menntun barna okkar er hjarta samfélagsins, en kerfið er að kikna. Við boðum nýja nálgun. Við viljum hverfa frá hugmyndafræðinni um skóla án aðgreiningar í grunnskólunum. Í mörgum tilfellum hefur sú stefna leitt til þess að hvorki nemendur né kennarar fái þann stuðning sem þeir þurfa. Við viljum skóla þar sem nemendur fá kennslu og úrræði við hæfi í umhverfi sem hentar þeirra þörfum. Með því tryggjum við meiri ánægju og árangur i skólunum og faglegt sjálfstæði kennara, sem hafa verið að vinna frábært starf, oft undir erfiðum aðstæðum.
Í leikskólum viljum við halda áfram að bæta það öfluga starf sem þar fer fram með þvi að hafa samráð við leikskólakennara og vinna að skýrum markmiðum. Við viljum tryggja að börn fái leikskólapláss fyrr en verið hefur. Með því viljum við styðja við barnafjölsyldur í Reykjanesbæ.
Íþrótta- og tómstundamál í heimsklassa
Öflugt íþrótta- og menningarstarf er forsenda sterks sveitarfélags og besta forvörnin sem völ er á. Við eigum ekki að sætta okkur við neitt minna en framúrskarandi aðstöðu. Reykjanesbær á að bjóða upp á íþróttamannvirki í heimsklassa sem grípa alla hópa, efla samfélagsandann og skapa vöggu fyrir afreksfólk framtíðarinnar.
Niðurlag
Við í Miðflokknum viljum metnað og skynsemi, sem þjónar bæjarbúum sem best. Við viljum tryggja að Reykjanesbær sinni skyldum sínum til þess að koma til móts við bæjarbúa. Við þurfum stjórnmálamenn sem þora að segja sannleikann og setja bæinn okkar í fysta sæti.
Tækifærið er núna. Setjum kraft í Reykjanesbæ.
X-M fyrir Miðflokkinn – Fyrir ábyrga stjórnun og sterka innviði.
Gunnlaugur Kárason
oddviti Miðflokksins í Reykjanesbæ





