Veður ekki í manninn heldur boltann
Okkur sem langar að starfa í þágu okkar samfélags ber sú skylda að velta við hverjum steini, vera heiðarleg og sanngjörn í leit okkar að bestu mögulegu niðurstöðu fyrir heildina.
Ég veit svo sannarlega alls ekki allt en ég veit eitthvað um margt og ég hika ekki við að spyrja og garfa þegar mig vantar að vita meira. Ég get alveg tekist á við aðra um málefni sem brenna á mínu hjarta en hef reynt mitt allra besta að vaða ekki í manninn heldur boltann og því hefur Viðreisn verið sá flokkur sem hefur höfðað best til mín.
Hér hef ég alltaf búið og mig langar að sjá bæinn okkar vaxa og dafna með heilindum og stolti. Við eigum ekki bara íþrótta- og tónlistarfólk til að monta okkur yfir heldur líka flottan og færan mannauð í hverju rúmi og það er kominn tími til að við eflum allt okkar fólk. Setjum hökuna upp, kassann fram og vinnum saman að því að gera samfélagið og bæinn okkar að enn einu sem við getum verið virkilega stolt af.
Gunnhildur Brynjólfsdóttir
Höfundur skipar 12.sæti á lista Viðreisnar í Reykjanesbæ





