Fréttir

Í nógu að snúast hjá björgunarsveitarmönnum - Reykjanesbraut lokuð - myndir úr ófærðinni
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 10:39

Í nógu að snúast hjá björgunarsveitarmönnum - Reykjanesbraut lokuð - myndir úr ófærðinni

Það hefur verið í nógu að snúast hjá öllum björgunarsveitum á Suðurnesjum í óveðrinu í morgun. Fjölmörg verkefni hefur þurft að leysa. Margir bílar hafa orðið fastir í snjónum vegnar ófærðar en þó hefur umferðin verið með minna móti.

Flestir skólar og leikskólar, stofnanir og fyrirtæki eru opin en foreldrar voru beðnir um að fylgja börnunum inn í skólana. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er þó ekki með starfsemi í dag.

Illfært er víða á vegum og t.d. var Reykjanesbraut lokuð en næst upplýsingar um stöðuna þar verða birtar kl.13 hjá Vegagerðinni. 

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Margir aðrir vegir eru lokaðir, m.a. Grindavíkurvegur og Nesvegur. Garðvegur og Sandgerðisvegur eru báðir í óvissu og gætu lokast með stuttum fyrirvara.

Veðrið átti að ná hámarki milli klukkan tíu og tólf en þá átti að draga úr látunum.

Rauði krossinn hefur opnað söfnunarstað á Smiðjuvöllum í Rauðakrosshúsinu ef einhver á ekki í hús að venda.

Hilmar Bragi, fréttastjóri og ljósmyndari Víkurfrétta hefur verið á ferðinni í morgun með björgunarsveitarmönnum og tók þessar myndir.