KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Aðsent

Munum óvissuna
Fimmtudagur 26. mars 2026 kl. 14:49

Munum óvissuna

Að afloknu níunda, öflugasta og síðasta eldgosinu í Kröflueldum (1975-1984) hófst landris að nýju og mátti þá búast við eldsumbrotum eftir enn eitt kvikuhlaup úr megineldstöðinni. En Krafla bærði ekki á sér með þeim hætti – og mörgum árum síðar hafði land sigið á mælistaðnum. Kröflueldum lauk sem sagt með landrisi.

Nú, þegar meiri kvika en áður hefur safnast í kvikugeyminn nálægt Svartsengi getur svo farið að ekki gjósi framar upp úr honum, líkt og í Kröflu forðum. Hitt er fyllilega mögulegt að það gerist og þá einmitt líklega á Sundhnúksreininni. Samt er óvíst með öllu hvar í sprungukerfinu gossprungan opnast, hve löng hún verður og hve lengi gosið gæti varað. „Biðtíminn“ eftir eldsumbrotum getur skipt dögum héðan af, vikum eða mánuðum. Eitt er þó vitað: Kvika rís sem betur fer miklu hægar upp í núverandi safnsvæði en lengst af í goshrinunni. Nýjasta hættumat Veðurstofunnar byggir á áratuga rannsóknum margra sérfræðinga, víðtæku eftirliti og eins vönduðum mælingum og tækni leyfir – og einnig af víðtækri reynslu af eldsumbrotum.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Sundhnúkseldum gæti í raun og veru lokið með landrisinu einu og sér – en úrskurður þess efnis verður aðeins felldur eftir drjúgan tíma. Miðaldahrinan margumrædda (frá 10. öld til 1240) er okkur kunn að gostímabilum og röð gosa á hverri öld og þekkt að færslu umbrota frá einu eldstöðvakerfi til annars. Hrinan sú er ekki forskrift að því sem gerast mun í nýhafinni óróahrinu heldur skilar okkur smám saman þekkingu í reynslubankann.

Mikil óvissa er svo uppi um framhald eldvirkni á Reykjanesskaga og Reykjaneshrygg, þó ekki væri nema á þessari öld (af fleirum) ef miðað er við fyrri óróahrinur. Eftir að eldvirkni lýkur á Sundhnúksreininni geta liðið nokkrar vikur, mánuðir eða ár, en líka áratugir, þar til jarðeldur brýst út innan einhverra af hinum fimm eldstöðvakerfunum á skaganum eða á flekaskilunum í sjó – og býsna opið hvort það verður í vestri/suðvestri eða austri/norðaustri, séð frá Sundhnúksreininni. Engu verður um það spáð, hér og nú.

Ari Trausti Guðmundsson
Höfundur er jarðvísindamaður og rithöfundur.