Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Svavar leiðir S-listann í Suðurnesjabæ
Sunnudagur 29. mars 2026 kl. 16:48

Svavar leiðir S-listann í Suðurnesjabæ

Svavar Grétarsson mun leiða S-listann, lista Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 16. maí næstkomandi.

Framboðið bauð til kynningarfundar og samtals við frambjóðendur á Bókasafni Suðurnesjabæjar sunnudaginn 29. mars, segir í frétt frá S-listanum.

Svavar Grétarsson sem leiðir framboðið kynnti frambjóðendur til leiks og lýsti um leið ánægju sinni með öflugan og fjölbreyttan framboðslista sem skipaður er aðilum úr báðum byggðakjörnum Suðurnesjabæjar, Garði og Sandgerði.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Þá sagði Svavar jafnframt frá því að á næstu dögum verði íbúum og áhugasömum boðið að taka þátt í málefnavinnu með frambjóðendum áður en formleg stefnuskrá verður birt og að búast megi við líflegum og skemmtilegum undirbúningstíma fyrir komandi kosningar sem S-listinn er svo sannarlega tilbúinn til að taka þátt í. S-listinn í Suðurnesjabæ mun leggja mikla áherslu á sameinað samfélag á komandi kjörtímabili og í kosningabaráttunni.

Listi Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ er skipaður eftirfarandi aðilum:

  1. Svavar Grétarsson, flotastjóri
  2. Bergný Jóna Sævarsdóttir, verkefnastjóri og stjórnsýslufræðingur
  3. Egill Rúnar Sigurðsson, stjórnmálafræðingur, atvinnurekandi og ökukennari
  4. Önundur S. Björnsson, bæjarfulltrúi og fyrrum sóknarprestur
  5. Thelma Dís Eggertsdóttir, grunnskólakennari
  6. Bára Kristín Þórisdóttir, háskólanemi, er í fæðingarorlofi
  7. Agnes Helgadóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur
  8. Jón Þór Jónsson, formaður Björgunarsveitarinnar Sigurvonar, háskólanemi og stuðningsfulltrúi
  1. Benóný Þórhallsson, smiður
  2. Przemyslaw Antoni Szymajda, verkstjóri
  3. Magnús Orri Arnarson, kvikmyndagerðarmaður
  4. Hildur Guðný Björnsdóttir, nemi
  5. Fannar Sigurbjörnsson, slökkviliðsmaður
  6. Sigurbjörg Ragnarsdóttir, fyrrum gjaldkeri
  7. Jón Snævar Jónsson, húsasmíðameistari
  8. Sigursveinn Bjarni Jónsson, sölustjóri og formaður bæjarráðs
  9. Elín Frímannsdóttir, löggiltur fasteignasali og fyrrum bæjarfulltrúi
  10. Jórunn Alda Guðmundsdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri og eldri borgari