Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Aðsent

Hugsjón verður til
Sunnudagur 29. mars 2026 kl. 09:51

Hugsjón verður til

Saga Skógræktarfélags Suðurnesja

Íslensk tunga er myndríkt tungumál, þangað sem ætíð má leita svara við áleitnum spurningum hugans. Svo er um orðið „hugsjón“, sem táknar hugmynd um fyrirmyndarskipan einhvers um eitthvað sem framkvæma þurfi til að hafa áhrif á framtíðina. Orðið lýsir uppljómun hugans, vegna sýnar sem birtist honum í líki myndar sem þurfi að vera leiðarljós viðkomandi þar til yfir lýkur. Hugsjónir eru misáleitnar og háleitar að sama skapi. Svo er einnig um afleiðingar þeirra, allt eftir því hvernig þeim er fylgt eftir. Menn hafa verið fangelsaðir, krossfestir eða líflátnir á annan hátt fyrir að fylgja hugsjónum sínum eftir, aðrir hlotið vegtyllu í lifanda lífi eða síðar vegna þess að hugsjónir viðkomandi hafa haft bætandi áhrif á lífsleikni fjöldans. Hugsjónamenn skera sig gjarnan úr meðal fjöldans og vekja athygli með háttarlagi sínu.

Saga skógræktar á Íslandi er saga einstaklinga og hópa sem höfðu þá sýn að breyta þyrfti landi, almenningi til heilla og skila aftur til jarðarinnar nokkru af þeim gæðum sem frá henni höfðu verið tekin í tímanna rás og jafnvel bæta við í formi fjölbreytni góðurfars. Sagan af Suðurnesjum er af sama meiði, þar sem baráttan við óblíð náttúruöfl og óheftan ágang búpenings hefur allt fram til okkar daga mótað árangur þess starfs sem hundruðir hafa lagt hönd á plóg. Framtíðin er hins vegar björt fyrir skógrækt á svæðinu, þökk sé hlýnandi veðurfari, aukinni þekkingu og framræktun þolinna trjáyrkja og jarðvegsbætandi lággróðurs. Árangur starfsins er því sýnilegri og hefur í för mótandi áhrif á þá sem vilja njóta. Fólk sækir í vaxandi mæli í trjálundi sem verða til og sækir þangað hugarró í erli þeim sem nútímasamfélag annars býður upp á með snjalltækni og samfélagsmiðlum, sem stöðugt áreita sálina.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Endurvakið Skógræktarfélag Suðurnesja má vera stolt af verkum sínum af þrjátíu ára uppgræðslu Vatnsholtsins hér í bæ. Því skilar félagið nú aftur til bæjarins samkvæmt samningsbundnu samkomulagi.

Um þetta verður fjallað á fyrirhuguðum aðalfundi Skógræktarfélags Suðurnesja sem haldinn verður mánudaginn 30. mars kl. 17.30 í fyrirlestrarsal Fimleikaakademíunnar.

Fh. stjórnar,
Konráð Lúðvíksson