D-listinn í Suðurnesjabæ kynnir framboðslista sinn fyrir kosningar
Sjálfstæðisflokkurinn og óháðir í Suðurnesjabæ hafa opinberað framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram þann 16. maí næstkomandi. Listinn er skipaður fjölbreyttum hópi fólks úr atvinnulífinu, menntakerfinu og stjórnsýslunni, þar sem blandað er saman reynslu og nýjum kröftum.
Til að kynna listann og málefnin fyrir íbúum verður efnt til kynningarfundar á morgun, laugardaginn 28. mars, klukkan 15:00. Fundurinn fer fram á Vitanum (Vitatorgi 7) og er öllum opinn. Boðið verður upp á spjall um sveitarstjórnarmál og tækifæri til að kynnast frambjóðendum í óformlegu umhverfi.
Efsta sæti listans skipar Haukur Andreasson, lögfræðingur og fasteignasali. Fast á hæla honum koma Haraldur Helgason, teymisstjóri hjá LSH, og Oddný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri í ferðaþjónustu. Listinn endurspeglar breiddina í samfélaginu í Suðurnesjabæ, en þar má finna verkfræðinga, menntafólk, iðnaðarmenn og fulltrúa úr atvinnulífinu.
Einar Jón Pálsson, forseti bæjarstjórnar, skipar 18. sæti listans og tekur þar með heiðursætið að þessu sinni.
Listinn í heild sinni er skipaður eftirfarandi einstaklingum:
1. Haukur Andreasson, lögfræðingur og fasteignasali hjá Allt fasteignir
2. Haraldur Helgason, teymisstjóri veitingaþjónustu LSH
3. Oddný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri ferðamálaþjónustu
4. María Kjartansdóttir, Msc verkfræðingur og verkefnastjóri framkvæmda hjá Isavia
5. Berglind Lára Haraldsdóttir, deildarstjóri Leikskólans Grænaborg
6. Margrét Edda Arnardóttir, atvinnurekandi og íþróttaþjálfari
7. Fannar Logi Waldorff Sigurðsson, nýstúdent á 2.5 árum og skógarmaður
8. Arnar Geir Gestsson, pípulagningameistari og eigandi AG pípulagnir
9. Sólmundur Ingi Einvarðsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Skólamatar
10. Sigurður Þór Magnússon, framkvæmdastjóri hjá Pallar og plön
11. Bergljót Bára Theodórsdóttir, starfsmaður leikskólans Grænaborgar
12.Guðmundur Torfi Rafnsson, húsasmíðameistari og slökkviliðsmaður
13. Jónatan Már Sigurjónsson, flugöryggisvörður
14. Oliwia Fierka, stúdent og starfsmaður Apótekarans
15. Bogi Jónsson, blikksmiður
16. Jón Kristinn Snæhólm, Alþjóðastjórnmálafræðingur
17. Gunnar Häsler, ellilífeyrisþegi
18. Einar Jón Pálsson, forseti bæjarstjórnar og skipar heiðursæti listans.



