Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Keflavík vann grannaslaginn í Njarðvík - spenna framundan í úrslitakeppninni
Egor Koulechov var stigahæstur Keflvíkinga í Njarðvíkursigri. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 22:01

Keflavík vann grannaslaginn í Njarðvík - spenna framundan í úrslitakeppninni

Það verður ekkert aprílgabb þegar fyrsti leikurinn í úrslitakeppninni í Bónus deild karla hefst en það verður viðureign Grindavíkur og Njarðvíkur í Grindavík 1. apríl. Keflavík vann Njarðvík í síðustu umferð deildarkeppninnar og mætir Valsmönnum.

Það var nágrannaslagur í IceMar höllinni þegar Njarðvík tók á móti Keflavík. Leikurinn skipti Njarðvík ekki máli hvað varðar stöðuna í deildinni, öfugt við Keflavík þar sem sigur gæti tryggt liðinu 5. sæti í deildinni.

Leikurinn var sveiflukenndur. Keflvíkingar náðu stóru forskoti 5-21 í byrjun en heimamenn náðu að minnka muninn en voru þó sex stigum undir eftir fyrsta leikhluta, 21-27. Njarðvíkingar tóku annan leikhluta með tólf stigum og leiddu í hálfleik 48-42.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Keflvíkingar voru aðeins betri í síðari hálfleik og tryggðu sér nauman sigur en spennan var mikil í lokaleikhlutanum þar sem jafnt var með liðunum. Lokatölur 82-86 og Keflavík tryggði sér 5. sætið og mætir Val í 8 liða úrslitum.

Egor Koulechov átti enn einn stórleikinn og var með 27 stig og 13 fráköst, Mirza Bulic 22/13 fráköst. Þeir voru atkvæðamestir hjá Keflavík. Remi Martin var ekki húsi og það sem VF heyrði var að hann væri að glíma við meiðsli. Hjá Njarðvík skoraði gamli Keflvíkingurinn, Dominykas Milka 23 stig og tók tíu fráköst. Luwane Pipkins skoraði 17 stig.

Grindvíkingar sem höfðu ekki að neinu að keppa í tveimur síðustu umferðunum unnu Þór Þorlákshöfn á heimavelli 108-94 en það þýddi að Þórsarar féllu niður í 1. deild. Sigurinn var öruggur hjá Grindavík en stigahæstur var Unnsteinn R. Kárason með 26 stig. Jordan Semple skoraði 20 stig og tók 8 fráköst.

Njarðvík-Keflavík 82-86 (21-27, 27-15, 18-22, 16-22)

Njarðvík: Dominykas Milka 23/10 fráköst, Luwane Pipkins 17/6 fráköst, Veigar Páll Alexandersson 16/8 fráköst, Dwayne Lautier-Ogunleye 12/7 fráköst/7 stoðsendingar, Sven Smajlagic 12/5 fráköst, Brynjar Kári Gunnarsson 2, Snjólfur Marel Stefánsson 0, Sigurður Magnússon 0, Guðmundur Aron Jóhannesson 0, Almar Orri Jónsson 0, Bóas Orri Unnarsson 0, Kristófer Mikael Hearn 0.

Keflavík: Egor Koulechov 27/13 fráköst/6 stoðsendingar, Mirza Bulic 22/13 fráköst, Jaka Brodnik 15, Craig Edward Moller 9/4 fráköst, Halldór Garðar Hermannsson 7/8 stoðsendingar, Ólafur Björn Gunnlaugsson 4, Hilmar Pétursson 2, Daniel Eric Ottesen Clarke 0, Nikola Orelj 0, Jakob Máni Magnússon 0, Frosti Sigurðarson 0, Eyþór Lár Bárðarson 0.

Dómarar: Jóhannes Páll Friðriksson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Sófus Máni Bender

Áhorfendur: 698

---

Grindavík-Þór Þ. 108-94 (22-20, 31-22, 29-24, 26-28)

Grindavík: Unnsteinn Rúnar Kárason 26, Jordan Semple 20/8 fráköst/3 varin skot, Jeremy Raymon Pargo 17/6 fráköst/7 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 11, Deandre Donte Kane 8/4 fráköst/5 stoðsendingar, Valur Orri Valsson 8/5 fráköst/9 stoðsendingar, Kristófer Breki Gylfason 7, Patrekur Atlason 4, Ragnar Örn Bragason 4, Nökkvi Már Nökkvason 3, Alexander Veigar Þorvaldsson 0.

Þór Þ.: Djordje Dzeletovic 22/10 fráköst, Dachon Burk 18/12 stoðsendingar, Rafail Lanaras 15/5 fráköst, Lazar Lugic 13/8 fráköst, Emil Karel Einarsson 9, Davíð Arnar Ágústsson 8, Arnór Daði Sigurbergsson 3, Ísak Júlíus Perdue 2, Baldur Böðvar Torfason 2, Skarphéðinn Árni Þorbergsson 2, Haukur Davíðsson 0, Tristan Alexander Szmiedowicz 0.

Dómarar: Kristinn Óskarsson, Birgir Örn Hjörvarsson, Ingi Björn Jónsson

Áhorfendur: 1507

Njarðvík-Keflavik Bónusd.kk 26.3.26