Íþróttir

Sigrar hjá Njarðvík og Keflavík - úrslitakeppnin að hefjast
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 11:52

Sigrar hjá Njarðvík og Keflavík - úrslitakeppnin að hefjast

Keflavík og Njarðvík unnu sína leiki í síðustu leikjum deildarkeppninnar í Bónus deild kvenna í körfubolta. Spennandi úrslitakeppni er framundan og hefst í næstu viku.

Njarðvíkingar tryggðu sér 2. sætið með öruggum 26 stiga heimasigri á Val, 61-87.

Brittany Dinkins, að margra mati besti leikmaður deildarinnar, fór enn einu sinni mikinn með UMFN og skoraði 38 stig, tók 10 fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Ungu Njarðvíkurstelpurnar voru líka góðar, sérstaklega þær Hulda María Agnarsdóttir (11 stig) og Inga Lea Ingadóttir (9 stig).

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Eftir jafnan fyrri hálfleik leiddu gestirnir í leikhlé með minnsta mun, 45-46.

Njarðvíkurkonur sýndu styrk sinn undir forystu Dinkins í síðari hálfleik, þær náðu forystu og juku hana jafnt og þétt og unnu að lokum 87-61.

Úrslit leiksins í Keflavík höfðu áhrif á stöðu liðanna en heimakonur tryggðu sér 6. sætið með sannfærandi sigri.

Stjarnan náði reyndar sex stiga forystu eftir fyrsta leikhluta en eftir það tók bítlabæjarliðið leikinn í sínar hendur og vann næstu tvo leikhluta 22-8 og 39-18 og lokaleikhlutann 14-10. Lokatölur 90-57, stórsigur í Blue höllinni.

Keflavíkurliðið hefur ekki sýnt sitt rétta andlit í vetur með tvær af lykilmönnum landsliðsins og góðan útlending innanborðs en þær voru mjög góðar í þessum leik.

Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst með 22 stig og Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 20 stig. Þær leiddu lið Keflavíkur í þessum stóra sigri.

Njarðvík-Valur 87-61 (23-20, 12-16, 26-15, 26-10)

Njarðvík: Brittany Dinkins 38/10 fráköst/8 stoðsendingar/6 stolnir, Hulda María Agnarsdóttir 11, Inga Lea Ingadóttir 9/5 fráköst, Danielle Victoria Rodriguez 7/5 fráköst/7 stoðsendingar, Sara Björk Logadóttir 6, Sofia Roma 5/7 fráköst, Kristín Björk Guðjónsdóttir 5, Krista Gló Magnúsdóttir 4/5 fráköst, Eygló Kristín Óskarsdóttir 2, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Dagbjort Dora Kristmannsdottir 0, Aníta Rut Helgadóttir 0.

Keflavík-Stjarnan 90-57 (15-21, 22-8, 39-18, 14-10)

Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 22/4 fráköst/5 stoðsendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 20, Keishana Washington 13/5 stoðsendingar, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 9/5 stolnir, Bríet Sif Hinriksdóttir 6, Angelina Turmel 6/9 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 6, Agnes María Svansdóttir 5/6 fráköst, Anna Lára Vignisdóttir 3/4 fráköst, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Sofie Tryggedsson Preetzmann 0.

Þessi lið mætasta í 8-liða úrslitum 30. og 31. mars nk.:

  • Haukar-Stjarnan
  • Njarðvík-Tindastóll
  • KR-Keflavík
  • Valur-Grindavík