Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Alvarlegur misbrestur hjá barnavernd Reykjanesbæjar
Föstudagur 27. mars 2026 kl. 19:45

Alvarlegur misbrestur hjá barnavernd Reykjanesbæjar

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefur lokið viðamikilli frumkvæðisathugun á málavinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar. Athugunin beindist sérstaklega að þeim málum þar sem börn hafa verið vistuð utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga. Tilefni eftirlitsins var fjöldi og innihald ábendinga og kvartana sem borist höfðu stofnuninni vegna þessara mála.

Athugunin náði til vinnslu mála á tímabilinu frá ársbyrjun 2024 fram í febrúar 2025. Eftirlitsaðilar völdu 23 mál til ítarlegrar skoðunar af þeim 41 máli sem voru til vinnslu á tímabilinu. Gagnaöflun fól í sér rýni á upplýsingum frá barnaverndarþjónustunni, viðtöl við starfsfólk og stjórnendur auk samtala við úrtak fósturforeldra.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Kerfisbundnir annmarkar á skráningu og samningum

Niðurstaða stofnunarinnar er afgerandi og sýnir að töluverður og alvarlegur misbrestur hafi orðið á vinnslu mála hjá þjónustunni. Meðal þess sem fannst að var verulegur skortur á fullnægjandi skráningu gagna og varðveislu mikilvægra upplýsinga. Þá var mikið vanhald á því að fóstur- eða vistunarsamningar væru í gildi allan þann tíma sem börn dvöldu utan heimilis.

Einnig kom í ljós að ekki var gengið úr skugga um að vistunaraðilar væru með tilskilin leyfi frá eftirlitsstofnuninni. Í mörgum tilfellum var grundvöllur vistunarinnar ekki tryggður með fullnægjandi hætti, svo sem hvort fyrir lægi samþykki foreldra eða ekki. Þá skorti á að í gildi væru áætlanir um trygga umsjá barnanna líkt og lög kveða á um.

Réttindi barna og foreldra fyrir borð borin

Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við hvernig gætt var að réttindum barna við málsmeðferðina. Misbrestur var á skipun talsmanna og því að virða aðilastöðu barna sem náð hafa 15 ára aldri. Eftirlitið leiddi einnig í ljós að réttarstaða foreldra var ekki ávallt tryggð, sérstaklega í þeim tilfellum þar sem barnaverndarráðstafanir beindust aðeins að öðru foreldrinu.

Að mati Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála var skyldum varðandi umgengni við börn í fóstri ekki fylgt að fullu og eftirliti og stuðningi við börn og fósturforeldra var verulega ábótavant. Telur stofnunin ljóst að verulegir annmarkar hafi verið á málavinnslunni og að kröfum laga og reglugerða hafi ekki verið fylgt í þeim málum sem skoðuð voru.

Kröfur um tafarlausar úrbætur

Stofnunin leggur ríka áherslu á að barnaverndarþjónusta Reykjanesbæjar efli innra eftirlit sitt til að stuðla að betri gæðum og auknu öryggi þjónustunnar. Settur hefur verið fram fjöldi tilmæla um úrbætur sem barnaverndinni ber að fara eftir. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefur þegar óskað eftir úrbótaáætlun frá Reykjanesbæ og er þess krafist að öllum úrbótum á málavinnslunni verði lokið eigi síðar en 1. janúar 2027.

Hér er skýrslan.