KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Tækifærin á Suðurnesjum vöktu athygli á Verk og vit
Föstudagur 27. mars 2026 kl. 06:42

Tækifærin á Suðurnesjum vöktu athygli á Verk og vit

Fjölmenni var á sameiginlegum kynningarfundi Kadeco, Suðurnesjabæjar og Reykjanesbæjar á stórsýningunni Verk og vit sem haldin var í Laugardalshöll um helgina. Yfirskrift fundarins var „Hvar liggja tækifærin á Suðurnesjum“ og sögðu Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco og Elín Guðnadóttir yfirverkefnastjóri Kadeco frá spennandi tækifærum í uppbyggingu á Suðurnesjum í tengslum við K64 þróunaráætlunina. 

Að sögn Pálma Freys Randverssonar, framkvæmdastjóra Kadeco, var góð aðsókn á bæði fyrirlesturinn en einnig á básinn og mikill áhugi á verkefnunum. „Það var ánægjulegt að sjá hversu vel var mætt og hve mikill áhugi er á öllum þessum fjölbreyttu verkefnum á borð við hringráðsariðngarð í Helguvík og Bergvík og íbúðauppbyggingu á Ásbrú. Það var líka ótrúlega dýrmætt að standa þarna saman og kynna framtíðarsýn svæðisins enda er samstarf lykillinn að allri framþróun og K64 er í grunninn samstarfsverkefni,“ segir Pálmi Freyr.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Hann segir kynningu á verkefninu K64 hafa gengið einstaklega vel og að þau finni fyrir auknum áhuga og meðbyr erlendis frá en fulltrúar Kadeco tóku nýverið þátt í alþjóðlegu fasteigna- og þróunarráðstefnunni MIPIM í Frakklandi þar sem verkefnið var kynnt en ráðstefnan er ein sú stærsta og áhrifamesta á sviði fasteignaþróunar.

Að hans sögn er megináhersla í kynningarstarfi og skilaboðum K64 að sýna fjárfestum að svæðið sé tilbúið til uppbyggingar, með skýrt afmörkuðum svæðum sem henti fjölbreyttum atvinnugreinum.

Kadeco vinnur með Íslandsstofu og öðrum hagsmunaaðilum að markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar fyrir fjárfestingar og atvinnustarfsemi.

Á Verk og vit voru einnig kynnt áform um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Ásbrú. Gert er ráð fyrir að þar rísi allt að sex þúsund íbúðir til ársins 2050. Svæðið er talið vel í stakk búið fyrir uppbyggingu, með fyrirliggjandi innviðum og möguleikum á frekari þéttingu byggðar.

„Við höfum lagt mikla vinnu í að byggja undirstöðurnar og er nú uppbyggingin þegar hafin í nokkrum verkefnum. Til dæmis er stefnt er að því að framkvæmdir hefjist á tveimur reitum innan Ásbrúar í sumar og er ráðgert að bjóða út lóðir á fleiri reitum á næstu misserum. Unnið er að þróun nýrrar vefsíðu þar sem áformin verða kynnt nánar og við erum heldur betur spennt fyrir komandi tímum,“ sagði Pálmi. 

Caption