Bílapunkturinn valinn Fyrirmyndarfyrirtæki hjá Nemendastofu atvinnulífsins
Fyrst fyrirtækja á Suðurnesjum
Bílapunkturinn í Reykjanesbæ hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki Nemendastofu atvinnulífsins fyrir framúrskarandi árangur í þjálfun og fræðslu nýliða í vinnustaðanámi. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þar sem forseti Íslands veitti viðurkenninguna.
Valið fór fram úr hópi um 1.400 fyrirtækja víðs vegar af landinu, þar á meðal stórum og rótgrónum fyrirtækjum á borð við Össur, Marel og fleiri. Bílapunkturinn er jafnframt fyrsta fyrirtækið á Suðurnesjum til að hljóta þessa viðurkenningu.
Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í móttöku, þjálfun og uppbyggingu nýrra starfsmanna og leggja sérstaka áherslu á fræðslu og fagmennsku í starfsumhverfi sínu.
Aðstandendur Bílapunktsins segja viðurkenninguna vera mikinn heiður og hvatningu til áframhaldandi uppbyggingar. Viðurkenningin marki mikilvægan áfanga í starfsemi Bílapunktsins og undirstriki þann metnað sem lagður er í fagmennsku og uppbyggingu og endurmenntun starfsfólks. „Við erum afar stolt af þessari viðurkenningu. Hún staðfestir mikilvægi þess að leggja áherslu á góða þjálfun, fræðslu og stuðning við nýtt fólk í greininni,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Bílapunkturinn var stofnaður árið 2016 og er staðsettur í Grófinni 7, Reykjanesbæ. Eigandi er Valdimar Jón Sveinsson. Bílapunkturinn gerir tjónaskoðanir og viðgerðir fyrir öll tryggingarfélög sem og fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Starfsmenn eru átta talsins.





