Fjöldi útkalla og lokanir vega á svæðinu í óveðrinu í morgun
Aðgerðastjórn Suðurnesja var virkjuð klukkan 04:00 í morgun vegna aftakaverðurs sem gekk yfir landið. Veðrið náði hámarki milli klukkan 08:00 og 10:00, en þá mældist vindhraði allt að 48 m/s á Reykjanestá.
Miklar truflanir á samgöngum
Viðbragðsaðilar sinntu um 50 útköllum á meðan stormurinn stóð sem hæst. Helstu verkefni tengdust:
-
Ófærð og umferðaróhöppum: Fjöldi árekstra varð vegna lélegs skyggnis og erfiðra akstursskilyrða.
-
Aðstoð við vegfarendur: Margir festu bíla sína og nokkur ökutæki voru skilin eftir á miðjum vegum, sem torveldaði snjómokstur.
-
Fjúkandi hlutum: Sinna þurfti útköllum þar sem þakplötur og svalalokanir voru að gefa sig.
Öllum helstu vegum á svæðinu var lokað um tíma, þar á meðal Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi, Nesvegi og Suðurstrandarvegi. Söfnunarstaðir voru opnaðir í Vogum og Reykjanesbæ til að hýsa þá sem sátu fastir eða biðu þess að leiðir opnuðust.
Leiðir að opnast en álag í flugstöðinni
Rétt fyrir klukkan 13:00 voru nánast allar leiðir opnaðar að fullu eftir stutt tímabil með fylgdarakstri. Nesvegur er þó enn í skoðun hjá Vegagerðinni og stendur snjómokstur þar enn yfir.
Töluvert álag er nú í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þrátt fyrir mikið annríki gengur innritun og öryggisleit vel, en búist er við að umferðartoppurinn standi yfir næstu klukkustundina. Fólk er beðið um að sýna þolinmæði.
Samstillt átak 110 viðbragðsaðila
Um 110 manns frá lögreglu, slökkviliði, Rauða krossinum og björgunarsveitum tóku þátt í aðgerðum dagsins. Aðgerðastjórn færir sjálfboðaliðum sérstakar þakkir fyrir þeirra framlag og hrósar almenningi á svæðinu fyrir að sýna ábyrgð og fara eftir fyrirmælum.
Aðgerðastjórn er nú að hætta störfum þar sem aðstæður hafa batnað til muna.
Ferðamenn með farangur sinn á leið í flug í hádeginu í dag. VF/hilmarbragi





