Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Leifar húsa verði látnar standa  sem minnisvarði
Frá Víkurbraut í Grindavík. Ljósmynd: Golli
Sunnudagur 29. mars 2026 kl. 08:44

Leifar húsa verði látnar standa sem minnisvarði

Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt tillögu þess efnis að við niðurrif altjónshúsa við Víkurbraut verði hlutar þeirra skildir eftir sem minnisvarðar. Hugmyndin er að varðveita „veggstubba“ eða aðrar leifar sem munu minna á þau hús sem þarna stóðu áður en náttúruhamfarirnar dundu yfir.

Málið var rætt á fundi bæjarráðs þann 17. mars. Lögð er áhersla á að hugað sé að þessari minjavörslu áður en sjálft niðurrifið fer fram, svo hægt sé að samþætta leifarnar framtíðarskipulagi miðbæjarins. Telja bæjaryfirvöld að slíkir staðir geti haft mikið vægi fyrir íbúa og verið áhugaverðir áfangastaðir fyrir ferðamenn í framtíðinni.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Næstu skref fela í sér fund með arkitektastofunni Batteríinu til að útfæra hvernig þessum kröfum verður mætt í útboðsgögnum fyrir niðurrifið. Með þessu vill Grindavíkurbær tryggja að saga byggðarinnar glatist ekki alveg þótt mannvirki séu fjarlægð, heldur verði hluti af sögu staðarins sýnilegur áfram í bæjarmyndinni.