Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Glæsimark hjá Sveindísi í þriðja sigrinum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 28. mars 2026 kl. 11:27

Glæsimark hjá Sveindísi í þriðja sigrinum

Keflvíkingurinn Sveindís Jane Jónsdóttir heldur áfram að hrella markverði í bandarísku NWSL-deildinni í knattspyrnu. Hún skoraði glæsilegt mark í 2-1 sigri Angel City á Houston Dash í nótt.

Sveindís fékk boltann hægra megin í teignum eftir þunga sókn Angel liðsins, lagði boltann fyrir sig með hægri fæti og skaut svo bylmingsföstu skoti með vinstri fæti og boltinn endaði svo í skeytunum, geggjað jöfnunarmark sem okkar kona fagnaði vel og innilega.

Angel City hefur unnið þrjá fyrstu leikina í nýhafinni deild og Sveindís hefur skorað þrjú mörk og lagt upp tvö. Þá var hún valin maður leiksins.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir