Hvað fær 63 ára mann til að bjóða sig fram?
Hvað fær 63 ára mann til að stíga fram og bjóða sig fram til bæjarstjórnar, þrátt fyrir að hafa í nógu að snúast?
Svarið er einfalt: ábyrgð og tækifæri.
Ég hef tekið ákvörðun um að vera hluti af lausninni, að leggja mitt af mörkum til að gera Reykjanesbæ enn betri. Sæti á lista skiptir mig minna máli, það sem skiptir máli er að taka þátt.
Undanfarin ár hef ég upplifað ákveðna stöðnun í bænum okkar. Of mikil neikvæðni, skortur á skýrri sýn og ekki næg tenging milli fjárhags, framkvæmda og þeirra miklu möguleika sem við höfum hér.
En staðreyndin er sú að Reykjanesbær er uppfullur af tækifærum.
Á hverjum mánudegi vakna ég með þá hugsun að fram undan sé vika full af tækifærum. Þetta viðhorf vil ég sjá meira af í okkar samfélagi. Við eigum að nýta styrkleika bæjarins, atvinnulífið, staðsetninguna og fólkið til að byggja upp öflugt og jákvætt samfélag.
Ef við sköpum aðstæður þar sem fólk vill búa, þá fylgir atvinnulíf og þjónusta á eftir. Það er einföld staðreynd. Sterkt mannlíf byggir á góðum grunni, ábyrgum rekstri og skýrri framtíðarsýn.
Í dag höfum við dregist aftur úr á sumum sviðum. Viðhald og uppbygging í íþróttum og afþreyingu hefur ekki haldið í við þörfina. Það þarf að breytast.
Við þurfum að móta skýra framtíðarsýn og fara strax í þau verkefni sem þola enga bið.
Samgöngumál eru annað stórt verkefni. Ferðatími milli hverfa er orðinn of langur og álag á ákveðnum svæðum, sérstaklega við Sunnubraut og Faxabraut,og mun aðeins aukast ef ekkert er að gert.
Við þurfum að hugsa lengra, hugsa stærra. Til dæmis þarf að skoða með opnum huga hvort rétt sé að dreifa starfsemi Fjölbrautaskólans betur, þannig að umferð og aðstaða verði raunhæf til framtíðar.
Einnig er brýnt að bæta aðgengi að Ásbrú og tengingar við flugstöðina. Þetta eru lykilatriði fyrir bæði íbúa og atvinnulíf.
Í stuttu máli:
Við þurfum skýrari stefnu, betri forgangsröðun og jákvæðari sýn. Í maí gefst okkur tækifæri til að velja þá leið.
Ég vil vera í þeim hópi sem talar upp Reykjanesbæ, sem sér tækifærin og nýtir þau.
Veljum breytingar í bæ tækifæranna.
Kjósum XD.
Hjörleifur Stefánsson,
Höfundur skipar sæti á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ





