Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Austan stormur eða rok og snjókoma í appelsínugulri viðvörun á morgun
Sunnudagur 5. apríl 2026 kl. 12:38

Austan stormur eða rok og snjókoma í appelsínugulri viðvörun á morgun

Hún er ófrýnileg ásýndum veðurspáin fyrir mánudaginn 6. apríl, annan í páskum. Gefnar hafa verið út gular og appelsínugular viðvaranir vegna veðursins sem er að koma. Við Faxaflóa eru viðvaranir bæði gular og appelsínugular. Viðvaranir eiga við um allan Reykjanesskagann en Grindavík heyrir undir spásvæði fyrir Suðurland og þar gilda sömu viðvaranir á morgun.

Guð viðvörun tekur gildi klukkan 10 í fyrramálið með austan hvassviðri eða stormi og hríð. Klukkan 14 breytist viðvörunin í appelsínugula. Þá verður austan stormur eða rok og snjókoma. Viðvörun fer svo aftur yfir í gula viðvörun kl. 22 með suðaustan hvassviðri eða stormi. Hún gildir til kl. 01 aðfaranótt þriðjudags.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Fólk hugi að heimferð í dag

Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, betur þekktur sem Siggi Stormur, hvetur fólk til að sýna fyllstu varúð þar sem mikil illviðrislægð er nú í myndun suðvestur af landinu. Búist er við að veðrið skelli á af krafti þegar líður á annan í páskum, mánudaginn 6. apríl, og verður þess fyrst vart suðvestanlands.

Lægðinni fylgir bæði mikill vindur og mikil ofankoma með tilheyrandi hrakviðri og færðarspillingu. Sigurður ráðleggur fólki eindregið að nýta páskadaginn til að gera „sjóklárt“ og ganga frá lausamunum til að afstýra tjóni.

Sigurður hvetur þá sem eru í orlofshúsum til að huga að heimferð strax í dag, sunnudag, frekar en að bíða fram á mánudag þegar óveðrið fer að láta verulega til sín taka eftir hádegi. Framan af mánudagsmorgni verður veðrið skaplegra en versnar hratt þegar líður á daginn.

Svona eru viðvaranir fyrir Faxaflóa

Austan hvassviðri eða stormur og hríð (Gult ástand)
6. apr. kl. 10:00 – 14:00
Austan 15-23 m/s með snörpum vindhviðum. Einnig má búast við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður.

Austan stormur eða rok og snjókoma (Appelsínugult ástand)
6. apr. kl. 14:00 – 22:00
Austan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Snjókoma eða slydda og skafrenningur með slæmu skyggni og versnandi færð, en víða rigning um kvöldið. Ekkert ferðaveður. Einnig eru líkur á foktjóni og er fólk hvatt til að huga að lausamunum.

Suðaustan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
6. apr. kl. 22:00 – 7 apr. kl. 01:00
Suðaustan 15-23 m/s með snörpum vindhviðum. Einnig má búast við hríð á fjallvegum með versnandi færð. Varasamt ferðaveður.