KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Sumarstörf vantar fyrir 17 ára ungmenni á Suðurnesjum
Laugardagur 4. apríl 2026 kl. 08:34

Sumarstörf vantar fyrir 17 ára ungmenni á Suðurnesjum

Eftirspurn eftir sumarstörfum fyrir 17 ára ungmenni er veruleg og upplýsingar benda til þess að fyrirtæki á svæðinu hafi í auknum mæli sett 18 ára aldurstakmark. Þá er atvinnuleysi hærra hér en í öðrum sveitarfélögum. Þetta kemur fram í fundargerð Lýðheilsuráðs Reykjanesbæjar sem vekur athygli á aukinni þörf fyrir þjónustu við ungmenni í sveitarfélaginu.

Aðsókn í félagsmiðstöðvar hefur einnig aukist verulega, en mæting hefur aukist um 44% á síðastliðnum mánuði. Ljóst er að þörf er á frekari stöðugildum starfsfólks innan félagsmiðstöðvanna til að mæta þessari þróun.

Jafnframt hafa komið fram áhyggjur af hópi ungmenna, 16 ára og eldri, sem skortir viðeigandi úrræði. Ráðið hvetur til þess að sérstaklega verði skoðaður möguleiki á að hefja markvissa vinnu með þessum hópi, með það að markmiði að auka stuðning, þátttöku og velferð þeirra.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fyrir liggur mögulegur kostnaðarútreikningur vegna slíkra úrræða sem getur nýst við frekari ákvarðanatöku og útfærslu verkefnisins.