Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Blakdeild Keflavíkur hélt sitt fyrsta yngri flokka mót í blaki í Garði
Föstudagur 3. apríl 2026 kl. 13:11

Blakdeild Keflavíkur hélt sitt fyrsta yngri flokka mót í blaki í Garði

Blakdeild Keflavíkur hélt um nýliðna helgi sitt fyrsta Vormót yngri flokka í Garði, en um er að ræða í fyrsta sinn sem deildin stendur fyrir móti af þessari stærðargráðu fyrir yngri iðkendur. Mótið tókst afar vel og hefur þegar fengið jákvæð viðbrögð frá þátttakendum og aðstandendum.

Alls tóku 24 lið þátt, 125 keppendur mættu til leiks og þegar mest var voru yfir 200 manns í húsinu. Spilaðir voru 80 leikir í fjórum flokkum við frábæra stemningu.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Í tilkynningu þakkar deildin Suðurnesjabæ og Gerðaskóla fyrir aðstöðuna, svæðistjóra íþróttahéraða fyrir að koma verkefninu af stað og starfsfólki Íþróttamiðstöðvar Garðs og skólans í Garði fyrir dýrmæta aðstoð.

Viðbrögð hafa verið afar jákvæð og sérstaklega hefur verið hrósað fyrir góða stemningu. Foreldrar sáu um heimabakað góðgæti í sjoppu og styrktaraðilar: Skólamatur, Nettó, Sigurjónsbakarí og Langbest studdu vel við bakið á mótinu.

Mótið er mikilvægt fyrir uppbyggingu og rekstur deildarinnar og styrkir framtíð blaks á Suðurnesjum, þar sem mikil tækifæri eru til staðar.

Blakdeildin býður nýja iðkendur velkomna að prófa blak – líflega og skemmtilega íþrótt sem byggir á samvinnu og hreyfingu. Sérstaklega er óskað eftir fleiri strákum, en einnig eru stelpur ávallt velkomnar.

Einnig er fullorðinsblak á uppleið þar sem áhersla er á hreyfingu, gleði og góðan félagsskap. Allir eru velkomnir að taka þátt og hafa gaman.

Það sem stendur upp úr er að mótið tókst afar vel og það sem stóð upp úr var gleðin allir fóru heim sáttir eftir viðburðaríka blakhelgi, segir í tilkynningu frá Blakdeild Keflavíkur.