KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Íþróttir

Útisigur hjá Grindavík en Keflavík tapaði í Vesturbænum
Wasthington hjá Keflavík náði sér ekki á strik en Beeman var í stuði hjá Grindavík. VF/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 31. mars 2026 kl. 21:23

Útisigur hjá Grindavík en Keflavík tapaði í Vesturbænum

Grindavík vann en Keflavík tapaði í fyrstu umferð úrslitakeppni Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld.

Grindavíkurkonur leiddar af stórleik Abby C. Beeman sem skoraði 29 stig, eða helming stiga Grindavíkur, sóttu sterkan sigur á Hlíðarenda 55-59.

Grindvíkingar mættu með krafti og náðu góðri forystu í fyrsta leikhluta en Valskonur svöruðu strax fyrir sig og í hálfleik munaði bara einu stigi.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Spennan var mikil í seinni hálfleik en þær grindvísku, drifnar áfram af Beeman sem skoraði ekki bara mest heldur síðustu stigin og þær grindvísku náðu að klára nauman sigur. Þetta var mikilvægur sigur fyrir Grindavík og sterkt að taka sigur á útivelli í úrslitakeppninni. Lokatölur 55-59.

Keflavík sótti ekki gull í greipar KR-inga í Vesturbænum, sem sýndu allar sínar bestu hliðar. Keflavíkurkonur voru í basli allan tímann á meðan KR konur hittu miklu betur og í raun ótrúlega vel á köflum og unnu sanngjarnan og nokkuð öruggan sigur. Keflvíkingar náðu nokkrum sinnum að minnka muninn en heimakonur svöruðu alltaf að bragði og voru betri allan tímann.

Sara Rún skoraði mest hjá Keflavík, 18 stig, Keishana Washington skoraði ekki nema 12 stig og munar um minna.

Valur-Grindavík 55-59 (7-15, 13-8, 15-13, 20-23)

Grindavík: Abby Claire Beeman 29/6 fráköst, Isabella Ósk Sigurðardóttir 14/10 fráköst, Ellen Nystrom 8/8 fráköst/7 stoðsendingar/3 varin skot, Ólöf Rún Óladóttir 6, Farhiya Abdi 2/7 fráköst/5 stoðsendingar, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, Ólöf María Bergvinsdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0, Þórey Tea Þorleifsdóttir 0.

KR-Keflavík 85-69 (23-17, 20-18, 21-20, 21-14)

Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 18/5 fráköst, Keishana Washington 12/6 fráköst/8 stoðsendingar, Angelina Turmel 9/7 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 8, Agnes María Svansdóttir 8, Anna Ingunn Svansdóttir 7/6 fráköst, Sofie Tryggedsson Preetzmann 4, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 2, Anna Lára Vignisdóttir 1, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Bríet Sif Hinriksdóttir 0.