Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Atkvæði féllu á jöfnu í bæjarráði: Fjarvera fulltrúa stöðvaði útboð á göngustígum
Séð yfir göngustíg á milli Garðs og Sandgerðis.
Mánudagur 30. mars 2026 kl. 08:34

Atkvæði féllu á jöfnu í bæjarráði: Fjarvera fulltrúa stöðvaði útboð á göngustígum

Verulegur ágreiningur ríkir innan bæjarráðs Suðurnesjabæjar um fjármögnun og útboð á nýjum göngu- og hjólreiðastígum á milli Garðs og Leiru annars vegar og Sandgerðis og Rósaselstorgs hins vegar. Tillaga um að hefja þegar í stað útboðsferli beggja framkvæmda var felld á síðasta fundi ráðsins þar sem atkvæði féllu á jöfnu.

Sú sérstaka staða kom upp á fundinum að bæjarráð var ekki fullskipað. Sigursveinn Bjarni Jónsson (S-lista), formaður bæjarráðs, studdi tillöguna en Anton Kristinn Guðmundsson (B-lista) greiddi atkvæði gegn henni. Þar sem þriðja kjörna fulltrúa bæjarráðs, Laufeyju Erlendsdóttur (O-lista), vantaði á fundinn, náði meirihlutinn ekki að knýja fram samþykkt og féll tillagan því vegna jafnra atkvæða.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Gagnrýna fjárhagslega áhættu án samnings

Tillagan sem lögð var fram gerði ráð fyrir að unnin yrðu útboðsgögn og framkvæmdir boðnar út áður en formlegur samningur við Vegagerðina um kostnaðarþátttöku lægi fyrir. Í bókun fulltrúa B-lista Framsóknar kom fram að þótt flokkurinn styddi uppbyggingu innviða og bætt umferðaröryggi, væri það óábyrg fjármálastjórn að skuldbinda sveitarfélagið í útboð án þess að fjármögnun væri tryggð.

Framsóknarmenn telja felast í því mikla áhættu að treysta á framlög frá Vegagerðinni sem áætluð eru til langs tíma og endurskoðuð árlega. Telur fulltrúi flokksins að áður en farið sé í bindandi útboð þurfi raunhæf fjármögnun og undirritaður samningur við ríkið að liggja fyrir á borðinu.

Framkvæmdir í biðstöðu

Um er að ræða mikilvæga stíga sem eiga að bæta tengingar innan sveitarfélagsins og við nágrannabyggðir. Annar stígurinn á að liggja frá Garði að golfskálanum í Leiru en hinn frá Sandgerði að hringtorgi við Rósaselstorg, þar sem hann á að tengjast stígakerfi Reykjanesbæjar og flugstöðvarinnar.

Vegna fjarveru fulltrúa O-lista á fundinum er ljóst að málið mun koma aftur til kasta bæjarráðs eða bæjarstjórnar þegar ráðið er fullskipað. Líklegt má telja að meirihlutinn muni þá freista þess að koma málinu í gegn, en bókun Framsóknar gefur til kynna að hart verði deilt um hvort eigi að bjóða út verkið fyrr en Vegagerðin hefur formlega staðfest sinn hlut í kostnaðinum.