KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Deilt um nýja stöðu hjá þjónustumiðstöð í Vogum
Þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins Voga.
Mánudagur 30. mars 2026 kl. 08:24

Deilt um nýja stöðu hjá þjónustumiðstöð í Vogum

Miklar umræður sköpuðust á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga vegna auglýsingar eftir nýjum verkefnastjóra þjónustumiðstöðvar. Fulltrúi L-lista lagði fram tillögu um að hætt yrði við ráðninguna í núverandi mynd og auglýsingin tekin niður, en þeirri tillögu var hafnað af meirihluta bæjarstjórnar með sex atkvæðum gegn einu.

Tillaga L-listans gekk út á að fresta ráðningu verkefnastjóra og nýta þess í stað þá reynslubolta sem þegar starfa hjá sveitarfélaginu. Lagt var til að ráða frekar almennan starfsmann í þjónustumiðstöð sem hefði tilskilin réttindi til að stýra vinnuvélum og sinna fólksflutningum. Fulltrúi listans taldi rétt að bíða í eitt ár með frekari greiningu á þörf fyrir stjórnunarstöðu á meðan nýtt verkbeiðnakerfi væri innleitt.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Áhyggjur af réttindum og starfsmannamálum

Í bókun fulltrúa L-lista kom fram hörð gagnrýni á hvernig staðið var að auglýsingu starfsins. Telur listinn að vantað hafi sjálfsagðar kröfur um að viðkomandi geti unnið á vélum og sinnt skólaakstri. Þá lýsti minnihlutinn yfir áhyggjum af því að með þessari ákvörðun væri verið að ganga framhjá núverandi starfsmönnum sem hefðu í raun gegnt þessum skyldum í nokkur ár. Óttast er að slíkt geti leitt til þess að sveitarfélagið missi góða starfskrafta sem upplifi að starfsreynsla þeirra sé ekki metin þegar kemur að stöðuhækkunum innan stofnunarinnar.

Meirihlutinn leggur áherslur á faglegt ferli

Meirihluti bæjarstjórnar svaraði gagnrýninni með bókun þar sem lögð var áhersla á að sveitarfélagið auglýsti laus störf í samræmi við kjarasamninga og leitaði að þeim einstaklingi sem uppfyllti best sett hæfnisviðmið. Fram kom að ítarleg þarfagreining lægi að baki hinu nýja starfi verkefnastjóra og að bæjarráð hefði verið vel upplýst um skipulagsbreytingarnar af hálfu sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs.

Sérstaklega var tekið fram í svörum meirihlutans að mikilvægt væri að virða skiptingu ábyrgðar innan sveitarfélagsins. Samkvæmt samþykktum ráði bæjarstjórn aðeins í æðstu stjórnunarstöður en aðrir stjórnendur sjái um að ráða sitt starfsfólk. Meirihlutinn telur nauðsynlegt að sýna stjórnendum traust til að fara með starfsmannamál sinna sviða, enda beri þeir ábyrgð á rekstrinum.