KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

L-listinn í Vogum kynntur
Þriðjudagur 31. mars 2026 kl. 05:26

L-listinn í Vogum kynntur

L-listinn, listi fólksins í Sveitarfélaginu Vogum, opinberaði á föstudaginn framboðslista sinn fyrir fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara laugardaginn 16. maí næstkomandi. Hópurinn er skipaður öflugu fólki sem kemur víðsvegar úr í atvinnulífinu, segir í tilkynningu. Oddviti listans er Kristinn Björgvinsson, hann er jafnframt eini bæjarfulltrúi L-listans á núverandi kjörtímabili.
  • 1. Kristinn Björgvinsson, bæjarfulltrúi og verkefnastjóri
  • 2. Eðvarð Atli Bjarnason, varabæjarfulltrúi og sölustjóri
  • 3. Snædís Ósk Guðjónsdóttir, NPA aðstoðarmaður
  • 4. Anna Karen Gísladóttir, starfsmaður í Utankjarnaþjónustu fatlaðra og félagsliðanemi.
  • 5. Guðni Oddgeirsson, flotastjóri
  • 6. Berglind Petra Jóhannsdóttir, grunnskólakennari
  • 7. Theophilus Joe Yamoah, tónlistarmaður og deildarstjóri
  • 8. Þóranna Margrét Kristinsdóttir, nemi og flatkökugerðarkona
  • 9. Ástrós Ösp Gunnarsdóttir, skólaliði
  • 10. Dagný Rut Ólafsdóttir, leiðbeinandi í grunnskóla
  • 11. Ágúst Bjarnason, ellilífeyrisþegi
  • 12. Karen I. Mejna, heilbrigðisverkfræðingur BSc. og sjúkraliði
  • 13. Guðmundur Björgvin Hauksson, stóriðjutæknir
  • 14. Gísli Stefánsson, smiður
L-listinn, listi fólksins mun opna kosningaskrifstofu sína klukkan 19:00 þann 8. apríl næstkomandi í Glaðheimum, sal björgunarsveitarinnar að Iðndal 5, verið öll hjartanlega velkomin.
Miðbæjareignir
Miðbæjareignir