Atvinnulífið í Grindavík sækir í sig veðrið:
Fleiri starfsmenn en nokkru sinnui frá rýmingu
Atvinnulíf í Grindavík sýnir merki um aukinn styrk og vöxt, en samkvæmt nýjustu mælingu atvinnuteymis Grindavíkurbæjar hafa ekki fleiri starfsmenn mætt til vinnu í bænum síðan rýmingin átti sér stað. Þann 18. mars síðastliðinn sóttu 833 starfsmenn vinnu til bæjarins.
Um er að ræða talsverða fjölgun frá fyrri mánuðum, en til samanburðar mættu 784 til vinnu í byrjun janúar. Þetta er aukning upp á 49 starfsmenn á milli mælinga, eða um 6,3%.
Fleiri fyrirtæki og aukin umsvif
Ekki er aðeins starfsfólki að fjölga, heldur eru fyrirtækin í bænum einnig að verða fleiri. Í nýjustu mælingunni voru 67 fyrirtæki starfandi í bænum, sem er fjölgun um sjö frá því í janúar þegar þau voru 60 talsins.
Heildarfjöldi þeirra sem eru á launaskrá hjá grindvískum fyrirtækjum er mun hærri, eða alls 1.418 manns. Vegna vaktavinnu, hlutastarfa og annarra fjarvista mætir þó aðeins hluti þess hóps á svæðið á hverjum gefnum degi.
Staðan eftir starfsgreinum
Sjávarútvegur og ferðaþjónusta vega enn þyngst í atvinnulífinu, en mesta hlutfallslega aukningin á milli mælinga var í flokknum iðnaður og þjónusta.
Skipting starfsmanna 18. mars 2026:
-
Ferðaþjónusta og veitingar: 358
-
Sjávarútvegur: 245
-
Iðnaður og þjónusta: 175
-
Fiskeldi: 35
-
Opinber þjónusta: 20
Stígandi frá ársbyrjun 2025
Þegar horft er til lengri tíma má sjá skýra uppsvefnu. Frá 15. janúar 2025 hefur starfsmönnum sem mæta til vinnu í Grindavík fjölgað um 9,5%.
Athugið: Könnunin nær eingöngu til þeirra sem mæta líkamlega til vinnu innan bæjarmarkanna. Hún nær ekki til fjarvinnu utan bæjarins né utanaðkomandi verktaka sem þjónusta fyrirtæki á svæðinu.





