Jóni Inga Baldvinssyni þakkað fyrir fjögurra áratuga starf í þágu samfélagsins í Vogum
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Voga var Jóni Inga Baldvinssyni færður sérstakur þakklætisvottur fyrir einstaklega farsæl störf í kjörstjórn sveitarfélagsins, en hann lætur nú af störfum eftir ríflega 40 ára setu þar.
Saga Jóns Inga í kjörstjórn er órofa hluti af lýðræðislegri sögu sveitarfélagsins. Hann starfaði í kjörstjórn í rúm 40 ár og gegndi embætti formanns um það bil helming þess tíma. Í störfum sínum var Jón Ingi þekktur fyrir mikla víðsýni, festu og nákvæmni, eiginleika sem reyndust ómetanlegir við framkvæmd kosninga í gegnum áratugina.
Fagnaðarfundir í ráðhúsinu
Það var mikil gleði í loftinu þegar Jón Ingi mætti til bæjarstjórnarfundarins til að taka við viðurkenningunni. Auk starfa sinna í kjörstjórn er Jón Ingi einn ástælsasti kennari bæjarins og fyrrum aðstoðarskólastjóri í Stóru-Vogaskóla.
Áhrif hans á samfélagið í Vogum eru djúpstæð, enda hefur hann kennt stórum hluta íbúanna, þar á meðal nokkrum þeirra bæjarfulltrúa sem nú sitja í bæjarstjórn.
Kærar þakkir fyrir dýrmætt framlag
Sveitarfélagið Vogar færir Jóni Inga sínar dýpstu þakkir fyrir óeigingjarnt framlag og þá miklu vinnu sem hann hefur innt af hendi í þágu samfélagsins. Hans verður sárt saknað úr kjörstjórnarstörfum en eftir stendur dýrmætur starfsferill sem seint verður fullþakkaður.



