Njarðvíkursigur í fyrsta leik úrslitakeppninnar
Njarðvíkingar unnu fyrsta sigurinn í úslitakeppni Bónus deildar kvenna í körfubolta þegar liðið vann Tindastól í 8-liða úrslitum í IceMar höllinni í kvöld. Lokatölur 103-97.
Leikurinn var spennandi alveg fram í blálokin en heimakonur leiddu allan tímann og voru 13 stiga forskot í hálfleik.
Stólarnir gáfust hins vegar aldrei upp og minnkuðu muninn í þrjú stig í lokaleikhlutanum en Tindastóll vann tvo síðustu leikhlutana en það dugði ekki til.
Að venju voru Brittany Dinkins (35 stig), Danielle Rodriges (24 stig) besta í Njarðvíkurliðinu en ungu stelpurnar komu mjög sterkar inn og oft með mikilvægar körfur. Sara Björk Logadóttir var mjög öflug og skoraði 17 stig og Helena Rafnsdóttir var með ellefu.
Njarðvík-Tindastóll 103-97 (26-26, 33-20, 20-25, 24-26)
Njarðvík: Brittany Dinkins 35/5 fráköst/7 stoðsendingar, Danielle Victoria Rodriguez 24/11 fráköst/9 stoðsendingar, Sara Björk Logadóttir 17, Sofia Roma 12/7 fráköst, Helena Rafnsdóttir 11, Hulda María Agnarsdóttir 4/5 fráköst, Inga Lea Ingadóttir 0, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Aníta Rut Helgadóttir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Krista Gló Magnúsdóttir 0.
Svipmyndir úr leiknum hér að neðan. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson



