Óvæntur Njarðvíkursigur í Grindavík
Njarðvíkingar sóttu óvæntan sigur á Grindavík í fyrstu umferð úrslitakeppni Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Þeir unnu tíu stiga sigur 87-97 í skrautlegum leik en uppúr sauð þegar ein mínúta var eftir en gestirnir fóru heim með mikilvægan sigur.
Heimamenn í Grindavík byrjuðu mun betur og allt stefndi í sigur þeirra en Njarðvíkingar komu til baka og unnu annan leikhluta með sex stigum. Í hálfleik var staðan 40-37 fyrir Grindavík.
Njarðvíkingar mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik þar sem þeir Milka (24 stig), Sven Smajlagic (23 stig) og Luwane Pipkins (19 stig) fóru mikinn og leiddu stigaskor Njarðvíkinga.
Hjá Grindavík voru Jeremy Parker (25 stig) og Deandre Kane (19) atkvæðamestir.
Heimamenn í Grindavík misstu einhvern veginn dampinn og gestirnir úr Njarðvík, neðsta liðið í úrslitakeppninni, gegn því efsta, vann sanngjarnan sigur í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum. Lokatölur 87-97.
Þessi úrslit eru skýrt dæmi um að úrslitakeppnin í körfunni er hafin. Þá getur allt gert.
Grindavík-Njarðvík 87-97 (24-14, 17-23, 24-27, 22-33)
Grindavík: Jeremy Raymon Pargo 25/6 stoðsendingar, Deandre Donte Kane 19/9 stoðsendingar, Jordan Semple 18/11 fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot, Kristófer Breki Gylfason 11, Ólafur Ólafsson 6/5 fráköst, Daniel Mortensen 5, Ragnar Örn Bragason 3, Patrekur Atlason 0, Arnór Tristan Helgason 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Valur Orri Valsson 0.
Njarðvík: Dominykas Milka 24/8 fráköst/6 stoðsendingar, Sven Smajlagic 23/8 fráköst, Luwane Pipkins 19/4 fráköst/8 stoðsendingar, Dwayne Lautier-Ogunleye 13/7 fráköst, Snjólfur Marel Stefánsson 6, Veigar Páll Alexandersson 6, Brynjar Kári Gunnarsson 6, Guðmundur Aron Jóhannesson 0, Kristófer Mikael Hearn 0, Ómar Orri Gíslason 0, Bóas Orri Unnarsson 0, Almar Orri Jónsson 0.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Sófus Máni Bender
Áhorfendur: 743
Viðureign: 0-1



