Heita vatnið gæti tekið á sig bleikan lit
Vegna umfangsmikillar viðhaldsvinnu í orkuverinu í Svartsengi í morgun hafa náttúruleg steinefni losnað úr jarðhitakerfinu. Þetta getur valdið því að heita vatnið á Suðurnesjum litist tímabundið og taki á sig bleikan blæ.
Samkvæmt upplýsingum frá tæknideild hefur óvænt „kísilmettun“ átt sér stað í varmaskiptum eftir að nýr vinnsluborholustofn var tengdur við kerfið. Við snögga oxun við yfirborð geta steinefnin gefið vatninu lit sem minnir helst á bleikan tón ef járnoxíð fylgir með í litlu magni.
Íbúar beðnir um að aðstoða við mælingar
Til þess að kortleggja hversu hratt litabreytingin ferðast um lagnakerfið í bæjarfélögunum á Suðurnesjum, eru íbúar vinsamlegast beðnir um að aðstoða við rauntímamælingar í dag, miðvikudag.
Hvað þarf að gera?
Látið renna í eitt glært glas af heitu vatni nákvæmlega klukkan 12:00.
Skoðið litinn vel við dagsbirtu.
Skráið niður litinn (t.d. glært, ljósblátt eða bleikt) og póstnúmer í athugasemd í á þennan tengil.
Er vatnið hættulegt?
Tæknimenn leggja áherslu á að þessi litabreyting sé með öllu hættulaus og hafi engin áhrif á gæði vatnsins til baða eða þrifa. Hins vegar er mælst til þess að fólk þvoi ekki hvíta þvotta fyrr en liturinn er horfinn úr kerfinu, sem búist er við að verði síðdegis í dag.
„Þetta er sjaldgæft fyrirbæri en getur gerst þegar við förum djúpt í kerfin í Svartsengi. Samvinna íbúa við að tilkynna litinn klukkan 12:00 hjálpar okkur gríðarlega við að fylgjast með flæðinu,“ segir í tilkynningunni.
„Við þökkum íbúum kærlega fyrir samstarfið við þessar óvenjulegu aðstæður,“ segir að lokum.



