Sjaldséð sæskjaldbaka fannst í Grófinni í Keflavík
– Höfð í volgu baði í Skessuhellinum á meðan beðið er eftir sérfræðingum
Það hefur verið í mörg horn að líta hjá Ragnari Guðleifssyni dýrafangara í morgun. Eins og greint var frá í gær hefur hann verið að sækja veika hrafna og álftir, en verkefni dagsins reyndist af allt öðrum toga og töluvert skemmtilegra: Sæskjaldbaka í Grófinni.
Það var Jón Pétursson sem átti leið um fjöruna í morgun þegar hann tók eftir einhverju óvenjulegu í flæðarmálinu rétt við Skessuhellinn. „Ég hélt fyrst að þetta væri bara stór steinn en svo sá ég að hann hreyfði sig. Þá áttaði ég mig á því að þetta væri lifandi skjaldbaka,“ segir Jón. „Ég hef búið hérna lengi en aldrei séð neitt þessu líkt.“
Dúðuð í ullarteppi í hellinum
Jón hafði samband við Þekkingarsetur Suðurnesja og sérfræðinga við Háskóla Íslands, en þar sem þeir komust ekki á staðinn fyrr en síðdegis var Ragnar dýrafangari kallaður til í bráðaaðgerðir. Ragnar náði að háfa skjaldbökuna úr köldum sjónum og dúða hana í þykk ullarteppi, enda dýrið vanara mun heitari slóðum en Norður-Atlantshafinu.
Til að tryggja að dýrinu yrði ekki meint af kuldanum var brugðið á það ráð að koma henni fyrir í stóru fiskikeri með volgu vatni inni í Skessuhellinum. Þar unir hún sér nú vel í skjóli við Skessuna á meðan beðið er eftir flutningi til Reykjavíkur.
Síðasta tækifærið til að sjá gestinn
Sérfræðingar eru væntanlegir á svæðið síðdegis til að meta ástand skjaldbökunnar og flytja hana í sérútbúið búr til frekari rannsókna.
Fyrir þá sem vilja sýna börnunum þennan óvenjulega gest er vissara að hafa hraðar hendur og leggja leið sína í Grófina strax, því búist er við að hún kveðji Keflavík fyrir kvöldmat.



