KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Fréttamenn og almenningur kolféllu fyrir aprílgabbi Víkurfrétta
Hér er Ragnar Guðleifsson með skjaldbökuna við aðsetur sitt við Hólmbergsbrautina í Keflavík. Myndin er upprunalega tekin þar sem Ragnar hélt á hrafni eins og sjá mátti í annarri frétt á vf.is í gær. Með aðstoð gervigreindar var hrafninum skipt út fyrir sæskjaldböku.
Miðvikudagur 1. apríl 2026 kl. 17:41

Fréttamenn og almenningur kolféllu fyrir aprílgabbi Víkurfrétta

„Það hringdi í mig blaðamaður úr Reykjavík sem trúði þessu eins og nýju neti. Hann vildi fá að vita eitthvað meira um skjaldbökuna. Síminn hefur hreinlega ekki stoppað hjá mér í dag og tugir manna spurt út í skjaldbökuna,“ segir Ragnar Guðleifsson, dýrafangari og meindýraeyðir, í samtali við Víkurfréttir nú síðdegis.

Ragnar var lykilmaður í hinu árlega aprílgabbi Víkurfrétta í dag, þar sem sagði frá sjaldgæfri sæskjaldböku sem átti að hafa fundist í Grófinni í Keflavík. Samkvæmt fréttinni átti dýrið að vera í volgu baði í fiskikari inni í Skessuhellinum á meðan beðið væri eftir sérfræðingum frá Reykjavík.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Straumur fólks í Grófina

Gabbið vakti gríðarleg viðbrögð og létu margir blekkjast. Fjöldi fólks lagði leið sína í Grófina og gekk að Skessuhellinum í von um að berja dýrið augum. Þar gripu menn hins vegar í tómt; eina sem blasti við var hin hrjótandi Skessa í hellinum sínum, en engin skjaldbaka sást í baði.

Á samfélagsmiðlum var ákveðið að loka fyrir athugasemdir til að skemma ekki brandarann strax, enda netið jafnan fullt af fólki sem hleypur til og tilkynnir öllum að það hafi „fattað“ gabbið.

Hvorki skjaldbökur né bleikt vatn

Það var þó ekki bara skjaldbakan sem reyndist vera hugarfóstur fréttamanna. Fréttin um að heita vatnið frá Svartsengi yrði bleikt eða ljósblátt vegna steinefnalosnunar reyndist sömuleiðis vera uppspuni. Þrátt fyrir hvatningu um að íbúar myndu „skola kerfið“ klukkan 12:00 og skoða litinn í glæru glasi, virðist flestum hafa orðið ljóst að um gabb var að ræða áður en farið var að láta renna í föturnar.

Víkurfréttir þakka Ragnari dýrafangara og öllum þeim sem tóku þátt í gríninu með okkur. Við vonum að þeir sem lögðu leið sína í Grófina hafi haft gaman af útivistinni, þótt skjaldbakan hafi látið standa á sér.

Það voru þónokkrir á ferðinni við skessuhellinn í morgun þegar fréttin um skjaldbökuna flaug sem hæst. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Skjaldbakan í fiskikarinu í skessuhellinum var tilbúningum og uppspuni frá rótum.