Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Grindvíkingar biðja Njarðvíkinga afsökunar
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 2. apríl 2026 kl. 12:38

Grindvíkingar biðja Njarðvíkinga afsökunar

Körfuknattleiksdeild UMFG hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem hún harmar einlæglega þau atvik sem áttu sér stað undir lok leik við UMFN í 8 liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta -  og biðst afsökunar við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur, leikmenn, þjálfara, starfsfólk, dómara, KKÍ, stuðningsfólk og alla körfuknattleiksfjölskylduna.

„Við fordæmum þá hegðun sem þarna átti sér stað. Það er óásættanlegt þegar stuðningsmaður gengur að leikvellinum með þeim hætti sem gerðist. Viðkomandi hefur beðist afsökunar á framferði sínu.

Sem mótshaldari munum við fara yfir málið af fullri alvöru, endurmeta verklag og öryggisfyrirkomulag og grípa til nauðsynlegra úrbóta.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Við viljum jafnframt þakka dómurum, gæslu og lögreglu fyrir skjót og ákveðin viðbrögð þegar á reyndi.

Körfuknattleiksdeild UMFG stendur fyrir ástríðu, baráttu og sterkt körfuboltasamfélag, en líka virðingu og góða umgjörð. Atvikin undir lok leiksins voru ekki í anda þeirra gilda sem félagið stendur fyrir og verður brugðist við af ábyrgð og festu.“

Meðfylgjandi myndskeið er frá visir.is