KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Aðsent

Er ímynd Reykjanesbæjar byggð á staðreyndum eða fordómum
Miðvikudagur 1. apríl 2026 kl. 15:58

Er ímynd Reykjanesbæjar byggð á staðreyndum eða fordómum

Ímynd sveitarfélaga verður ekki til af sjálfu sér. Hún mótast í samtali fólks, í fjölmiðlum, í orðræðu fagstétta og ekki síst í því hvernig við íbúarnir tölum um okkar eigið samfélag. Á undanförnum árum hefur Reykjanesbær oftar en ekki verið nefndur í neikvæðu samhengi og sú mynd virðist hafa fest sig í sessi víða sem er miður. Ekki vegna þess að hér sé allt fullkomið, heldur vegna þess að einhliða neikvæð umræða gefur ranga og ósanngjarna mynd af bæjarfélagi sem hefur margt gott fram að færa.

Reykjanesbær er bæjarfélag sem hefur vaxið hratt. Fólksfjölgun undanfarin ár hefur verið umtalsverð, meiri en víða annars staðar á landinu. Slík þróun á sér ekki stað af tilviljun. Fólk velur sér búsetu þar sem það sér tækifæri, möguleika og lífsgæði. Hér hefur myndast fjölbreytt og kraftmikið samfélag þar sem menning, íþróttir, atvinnulíf og fjölskyldulíf fléttast saman.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Óumdeilt er að hröð uppbygging og fjölgun íbúa kallar á ýmsar áskoranir. Innviðir þurfa að halda í við vöxt, þjónusta að þróast og kerfi að aðlagast. Slíkar áskoranir eru ekki séríslenskt fyrirbæri né bundnar við Reykjanesbæ. Þær fylgja öllum samfélögum sem vaxa hratt. Munurinn liggur hins vegar í því hvernig við veljum að tala um þær. Veljum við að einblína á það sem betur má fara, eða nýtum við tækifærið til að byggja upp og tala jafnframt um það sem vel er gert.

Orðræða skiptir máli. Hún mótar sjálfsmynd íbúa, hefur áhrif á aðdráttarafl sveitarfélagsins og á það hvernig utanaðkomandi aðilar, hvort sem það eru fjölmiðlar, fagfólk eða framtíðaríbúar skynja samfélagið. Ef við tölum stöðugt niður okkar eigið bæjarfélag festum við neikvæða ímynd í sessi. Ef við hins vegar tölum af sanngirni, með gagnrýna hugsun en einnig stolti og ábyrgð stuðlum við að heilbrigðari og réttlátari mynd.

Gagnrýni er nauðsynleg forsenda framfara. En hún þarf að vera málefnaleg, uppbyggileg og sett fram af ábyrgð. Hún má ekki verða að almennri alhæfingu sem segir að „allt sé verra hér“, því það er einfaldlega ekki rétt.

Reykjanesbær er samfélag fólks, fólks sem hér vinnur, elur upp börn, leggur sitt af mörkum og vill sjá sitt nærumhverfi blómstra. Við eigum öll hlut í þeirri mynd sem dregin er upp af bænum okkar. Það er sameiginleg ábyrgð okkar að tala af heiðarleika, en líka af virðingu og stolti.

Sterkara samfélag byrjar á því hvernig við tölum um það.

Fyrir hönd frambjóðenda Framsóknar í Reykjanesbæ,

Díana Hilmarsdóttir.