Mikið úrval bifreiða frá traustum aðilum
„Það er óhætt að segja að þróunin sé hröð í bílaheiminum. Landsmenn hafa tekið henni vel og við erum heppin að vera með fjölbreytt úrval af bílum frá traustum aðilum. Við erum með allar gerðir frá Suzuki-umboðinu og VATT og það hefur gengið mjög vel,“ segir Kjartan Steinarsson, bílasali hjá KSteinarsson í Reykjanesbæ.
Kjartan segir að það sé góð tilbreyting að geta boðið meira úrval af öðrum bílategundum en fólksbílum en sala á BYD-bílum hefur verið frábær en KSteinarsson hóf sölu á þeim fyrir rúmu ári síðan þegar breytingar urðu á högum bílasölunnar.
Árangursríkt samstarf
„Við höfðum verið í áralöngu samstarfi við Suzuki bíla og selt samnefnda bíla í langan tíma. Í rafbílavæðingunni hefur fyrirtækið bætt við sig fjölda gerða bíltegunda sem hafa fengið mjög góðar móttökur. Núna getum við boðið upp á fleiri tegundir fólksbíla en líka úrval sendibíla og pallbíla. Og það verður að segjast eins og er að það er mjög hagstætt verð á þessum bílum í dag,“ segir Kjartan sem hefur starfað sem bílasali í nærri fjóra áratugi en hann hóf störf sem bílasali árið 1989.
Tveir stærstu í heiminum
Hann segir að um sé að ræða tvo af stærstu rafbílaframleiðendum heims sem starfi í fjölda landa. Maxus-bílarnir eru þar á meðal en það er dótturfélag SAIC Motor, eins stærsta bílaframleiðanda Kína. Vörumerkið er þekkt fyrir nýstárlega tækni og fjölbreytt úrval af borgarjeppum, pallbílum og sendibílum sem seldir eru í 42 löndum. Þá sé SAIC-samstæðan í nánu samstarfi við alþjóðleg merki á borð við Volkswagen og General Motors.
Spennandi og áhugaverðir tímar í bílageiranum
„Við bílasalar eigum í fullu fangi með að fylgjast með örri og spennandi þróun í rafbílunum. Það er ótrúlegt hvað þetta gerist hratt. Breytingarnar eru miklar í bílageiranum. Nýjar rafhlöður og hleðslustöðvar hafa þróast hratt og verða sífellt öflugri. En þetta er spennandi og skemmtilegt,“ segir bílasalinn til tæpra fjörutíu ára.
KYNNING.

„Það er mjög hagstætt verð á þessum bílum í dag,“ segir Kjartan bílasali.

Bílamerkin hjá KSteinarsson
SUZUKI
Suzuki bílar hf. í Skeifunni hafa verið traust umboð á Íslandi í tæp 40 ár. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og þjónustu á Suzuki bifreiðum, mótorhjólum og fjórhjólum, auk varahluta. Suzuki leggur ríka áherslu á persónulega og faglega þjónustu og er nú einnig viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili fyrir rafmagnsbíla frá JAC.
VATT
Vatt ehf. sérhæfir sig í sölu og þjónustu á rafknúnum bifreiðum með áherslu á góða þjónustu á öllum sviðum. Fyrirtækið er umboðsaðili fyrir BYD, stærsta rafbílamerki heims, sem býður upp á breiða og vandaða línu fólksbíla. Þá selur Vatt einnig rafsendi- og pallbíla frá Maxus, sem er hluti af SAIC-samstæðunni.
BYD
BYD er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki og stærsti rafbílaframleiðandi heims. Frá stofnun árið 1995 hefur fyrirtækið byggt upp mikla sérþekkingu á rafhlöðum og sjálfbærum orkulausnum. BYD starfar í yfir 70 löndum og leggur áherslu á núlllosun, en fyrirtækið var meðal þeirra fyrstu í heiminum til að framleiða eina milljón rafknúinna fólksbíla.
MAXUS
Maxus er dótturfélag SAIC Motor, eins stærsta bílaframleiðanda Kína. Vörumerkið er þekkt fyrir nýstárlega tækni og fjölbreytt úrval af borgarjeppum, pallbílum og sendibílum sem seldir eru í 42 löndum. SAIC-samstæðan er í fararbroddi í bílaframleiðslu og á í nánu samstarfi við alþjóðleg merki á borð við Volkswagen og General Motors.
JAC
JAC Motors var stofnað árið 1964 og er í dag öflugt tæknifyrirtæki sem hannar og þróar fólksbíla, vélar og rafdrif. Fyrirtækið er einn stærsti framleiðandi rafbíla í heiminum, með yfir 33.000 starfsmenn og starfsemi í 130 löndum. JAC selur yfir 1,4 milljónir ökutækja árlega og er frumkvöðull á sviði rafvæðingar.






