Íslandshús fékk Nýsköpunarverðlaunin á Verk og vit
Aðalstjarna fyrirtækisins á sýningunni var forsteypt hraðahindrun
Fyrirtækið Íslandshús á Ásbrú fékk Nýsköpunarverðlaunin á sýningunni Verk og vit í Laugardalshöllinni um síðustu helgi fyrir framúrskarandi og hagnýtar lausnir í mannvirkjagerð. „Nýsköpun er hjartað í starfsemi Íslandshúss og það er því mikill heiður fyrir okkur að hafa fengið þessi verðlaun,“ segir Brynjar Húnfjörð framkvæmdastjóri fyrirtækisins en því hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og framleiðsla aukist með stöðugum nýjungum.
Íslandshús er fjölskyldufyrirtæki. Feðgarnir Brynjar og Óskar Húnfjörð reka það og eru eigendur en Óskar og Brynja Sif kona hans, sem eru bæði byggingafræðingar, stofnuðu það árið 2012. Fyrirtækið komst þá í fréttir þegar fyrsta framleiðsla þess, Dvergarnir, gerð úr afgangssteypu, kom á markaðinn. Dvergarnir voru ný hönnun á stólpum undir margs konar hýsi en þeir geta gegnt fleiri hlutverkum eins og margar af framleiðsluvörum fyrirtækisins sem hefur fjölgað ört á undanförnum árum.
Feðgar á ferð
„Þegar ég tók við sem framkvæmdastjóri fyrir ári síðan var ákveðið að pabbi myndi einbeita sér að nýsköpun. Hann hefur frá stofnun hannað allar okkar vörur og það hefur alltaf verið okkar markmið að koma á markað hágæðavörum sem hafa góða endingu, mikið notagildi og eru hentugar fyrir okkar viðskiptavini. Þess vegna eru kjörorð okkar „Við framleiðum lausnir“, segir Brynjar en auk þess að kynna vörur fyrirtækisins á sýningunni hafi heimasíða þess verið endurnýjuð og bætt. Þar er nú hægt að skoða megnið af framleiðslunni í þrívíddarmyndum sem er mikil framför og nýjung.
Brynjar segir að á Verk og Vit 2026 hafi þau sett fókusinn á sveitarfélög sem eru mikilvægir viðskiptavinir Íslandshúsa. „Við sýndum meðal annars nýjustu vörur okkar eins og Ljósálfinn, sérhannaðan ljósastólpa sem þolir íslenska veðráttu og skiltafestingakerfi úr ryðfríu stáli. Aðalstjarnan okkar á sýningunni var þó forsteypt hraðahindrun. Þetta er verkefni sem hefur tekið tvö ár í hönnun og markmiðið var að bæta líftíma, flýta framkvæmdartíma og minnka viðhald. Útkoman yrði meiri hagkvæmni og raunverulegur sparnaður fyrir sveitarfélög. Íslandshús eru því að móta ný viðmið í gerð hraðahindrana á Íslandi. Ljóst er af viðbrögðum sýningargesta að vel tókst til og við hlökkum til að vegfarendur fái að upplifa öryggi án óþæginda,“ bætir Brynjar við en hann segir að Verk og Vit hafi ávallt verið frábær vettvangur fyrir Íslandshús til að sýna vörur þess og eiga samtal við núverandi og nýja viðskiptavini í skemmtilegu umhverfi.
„Það er ánægjulegt að sjá metnað sýnenda verða meiri með ári hverju og það gagnast öllum þegar sýningin í heild er eins flott og vel heppnuð eins og raun ber vitni.“

Stuðst við kröfur Vegagerðarinnar í Noregi og á Íslandi
Óskar Húnfjörð segir að hugmyndavinna við forsteyptu hraðahindrunina hafi staðið yfir í tvö ár en þessi nýjung hjá fyrirtækinu fékk mikla athygli á sýningunni í Laugardalshöll. Íslandshús var með stóran og veglegan sýningarbás þar sem framleiðsluvörurnar nutu sín vel. Yfir básnum voru síðan stafrænir risaskjáir þar sem myndefni rúllaði í gegn allan sýningartímann.
Hraðahindrunin er forsteypt, gerð úr hágæðasteypu sem er lituð með rauðum lit. Hún er með 50 cm innkeyrsluflöt og bungu sem er 400 cm löng og 10 cm há. Við hönnun eininganna var stuðst við handbók norsku Vegagerðarinnar og handbók íslensku Vegagerðarinnar um yfirborðsmerkingu vega. Í hraðahindruninni eru tveir innsteyptir ferningar, framleiddir úr hvítri ofursteypu með ísettu glerkurli til að ná endurskinsáhrifum en rauði liturinn er einnig hugsaður svo hindrunin sé sýnilegri.
„Hraðahindranir hafa verið margs konar hér landi og hafa reynst misvel. Við teljum okkur vera komna með lausn sem henti vel á Íslandi og uppfylli flestar kröfur eins og lengri líftíma, framkvæmdahraða og minna viðhald. Hún vakti mikla athygli og við höfum fengið mikið af fyrirspurnum,“ segir Óskar.
Samstarfsaðilar fyrirtækisins í hönnun hraðahindrunarinnar eru Hnit verkfræðistofa, Reykjanesbær og Reykjavíkurborg. Þá hefur Íslandshús fengið styrki í tvígang frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
Ljósálfarnir standa sig vel
Ljósálfar eru hluti af framleiðslu fyrirtækisins og standa m.a. vaktina á strandleiðinni í Reykjanesbæ. Þeir eru ljósastólpar sem eru sérstaklega hannaðir með þarfir sveitarfélaga í huga. Þeir eru sterkbyggðir, búnir Led ljósabúnaði og vernda umhverfið gegn ljósmengun.
„Þetta hefur verið skemmtilegt þróunarverkefni með Reykjanesbæ og er enn í gangi. Við höfum verið að þróa nýjungar í Ljósálfunum sem m.a. tengjast merkingum á þeim og fleira,“ segir Óskar.

Íslandshús hlaut Nýsköpunarverðlaunin fyrir framúrskarandi og hagnýtar lausnir í mannvirkjagerð. Mat dómnefndar var að lausnir fyrirtækisins einkenndust af aukinni endingu, sveigjanleika og hagkvæmni í rekstri og viðhaldi.

Feðgarnir Brynjar og Óskar Húnfjörð.

Sýningarbásinn var veglegur og vakti verðskuldaða athygli.



